

Sérfræðingur aðfangastýringar
Norðurál leitar að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings aðfangastýringar með áherslu á gagnastjórnun og viðskiptagreind. Verkefnin eru áhugaverð og krefjandi í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi. Í starfinu er lögð áhersla á gagnadrifin innkaup, birgðastýringu og viðskiptaþjónustu. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra aðfangastýringar og viðskiptaþjónustu. Starfsstöðin er bæði á Grundartanga og á skrifstofu Norðuráls í Reykjavík.
· Þróun, greining og samræming gagna í SAP
· Viðhald og þróun mælikvarða og skýrslna
· Greiningar á birgðum, birgðahaldi og vöruflæði
· Innleiðing og þróun á Master Data Management
· Sjálfvirknivæðing og nýting gervigreindar
· Samstarf og samvinna við erlenda sérfræðinga innan Century Aluminum
· Önnur tilfallandi verkefni
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi
· Reynsla af gagnagreiningu og viðskiptagreind
· Reynsla af SAP eða öðrum ERP kerfum
· Góð þekking á Power BI eða sambærilegum greiningarlausnum
· Þekking á innkaupum, birgðastýringu eða aðfangakeðjum er kostur
· Greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð
· Samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi
· Frumkvæði og umbótahugsun
· Gott vald á íslensku og ensku
- Ferðir til og frá Akranesi, Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu
Íslenska
Enska










