
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) leitar að faglegum og reynslumiklum stjórnanda í starf framkvæmdastjóra fjármála. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf hjá árangursdrifinni stofnun þar sem reynir á greiningarhæfni, yfirsýn og frumkvæði. Fjöldi starfsfólks er tæplega 200 og er stofnunin með þrjár starfsstöðvar um landið. Auk þess ber HMS ábyrgð á rekstri lánasjóðs húsnæðismála svo að fjárhagsleg umsvif eru mikil. Jafnframt ber framkvæmdastjóri fjármála ábyrgð á teymi árangursstjórnunar og teymi gæða- og skjalamála.
Framkvæmdastjóri fjármála mun gegna lykilhlutverki í utanumhaldi með rekstri og þróun á sviði fjármála með það að markmiði að tryggja að HMS sinni lögbundnum verkefnum sem best á hverjum tíma og fari vel með opinbert fé. Framkvæmdastjóri fjármála mun sitja í framkvæmdastjórn og taka þannig þátt í stefnumótun og áætlanagerð.
- Leiða skilvirka stýringu fjármála og öruggt innra verklag
- Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlana, rekstraráætlana, kostnaðareftirlits og launaáætlana
- Gerð kostnaðargreininga, tölfræðivinnslu og fjárhagslegra greininga fyrir stjórnendur, stjórn og ráðuneyti
- Reglubundin upplýsingagjöf fyrir stjórn og framkvæmdastjórn
- Umsjón með bókhaldi og gerð ársreikninga
- Eftirlit með rekstri og fjárhagslegum markmiðum HMS
- Greiningar og miðlun upplýsinga til stjórnenda
- Yfirumsjón með teymi árangursstjórnunar og teymi skjala- og gæðamála
- Þróun og umbætur á verkferlum, verklýsingum og ferlum innan sviðsins
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
- Árangursrík reynsla af fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörsvinnu
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur
- Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu upplýsinga
- Leiðtogahæfni, framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að ná árangri í samvinnu við stjórnvöld, hagaðila og þvert á skipulagseiningar stofnunarinnar
- Umbótamiðað hugarfar, skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður
- Góð tölvukunnátta og þekking á fjárhags- og greiningartólum. Þekking á Orra, fjárhagskerfi ríkisins er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Íslenska
Enska










