Veitur
Veitur
Veitur

Samningastýra/stjóri hjá Veitum

Vilt þú hafa áhrif á hvernig samningar tryggja skilvirkan rekstur og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini Veitna?

Veitur leita að framsýnum og lausnarmiðuðum einstakling sem hefur auga fyrir smáatriðum og hefur hæfileika til þess að skapa skýra og skilvirka umgjörð utan um rekstrar- og fjárfestingarverkefni með góðum samningum. Við leitum að aðila með reynslu af því að tryggja að samningar skili raunverulegum og mælanlegum árangri.

Viðkomandi bætist við samningastjórateymi sem fyrir er og tekur þátt í áframhaldandi þróun þess.

Um starfið

Sem samningastýra/stjóri hjá Veitum berð þú ábyrgð á mótun og eftirfylgni samninga. Þú tryggir að samningar séu skýrir, mælanlegir og reknir í samræmi við skilmála, með áherslu á hagkvæmni, gæði og þjónustu. Þú vinnur náið með rekstrarfólki, verkefnastjórum og innkaupum og gegnir lykilhlutverki í samskiptum og eftirfylgni gagnvart verktökum þegar upp kemur ágreiningur.

Starfið krefst góðrar reynslu af framkvæmdasamningum og hæfni til að styðja rekstrarfólk og verkefnastjóra þegar upp koma áskoranir eða óvissa tengd framkvæmd samninga, kröfum og túlkun verklýsinga.

Helstu verkefni

  • Móta og þróa samninga
  • Innleiðing og rekstur samninga
  • Leiða teymi sérfræðinga við gerð samningsgagna
  • Fylgja eftir framkvæmd og gæðum samninga
  • Meta árangur og greina tækifæri til umbóta
  • Stýra samskiptum við alla helstu hagaðila


Hæfni

Við leitum að aðila með reynslu af samningagerð, rekstri samninga og samningastjórnun, helst á sviði verktakasamninga. Mikilvægt er að hafa sterka greiningarhæfni og reynslu af því að setja fram mælanleg markmið og fylgja þeim eftir, ásamt getu til að vinna markvisst með gögn til að mæla og bæta árangur.


Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á gæðastjórnun og frammistöðumati og hafi þróað færni í samningatækni og samskiptum í krefjandi aðstæðum. Starfið krefst jafnframt agaðra, skipulagðra og sjálfstæðra vinnubragða og hæfni til að knýja fram breytingar.


Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði verk-, eða tæknifræði, er nauðsynleg.

Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur20. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar