Advania
Advania
Advania

Business Central ráðgjafi með þekkingu á verkbókhaldi

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum ráðgjafa sem vill taka virkan þátt í umbreytingu fyrirtækja með Microsoft Dynamics 365 Business Central í skýinu. Hjá okkur færðu að vinna með nýjustu lausnir Microsoft, þar á meðal Copilot, gervigreindarvirkni og tækni sem er stöðugt að þróast.

Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur þekkingu á verkbókhaldi samhliða reynslu af Business Central.

Sem ráðgjafi sérðu um þjónustu og daglega sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina. Jafnframt tekur þú þátt í innleiðingar- og uppfærsluverkefnum. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og gefandi.

Starfið gæti hentað þér ef þú:

  • Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, rekstrarfræði eða sambærilegt nám
  • Hefur reynslu og góða þekkingu á fjárhags- og rekstrarkerfum, sérstaklega Microsoft Dynamics 365 Business Central / Dynamics NAV
  • Hefur þekkingu á verkbókhaldi, fjárhagsbókhaldi og rekstrarferlum.
  • Ert skipulögð/lagður, sýnir frumkvæði og ert sjálfstæð/ur í vinnubrögðum
  • Ert jákvæð/ur, býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Hefur áhuga á þróun ferla, sjálfvirknivæðingu og nýrri tækni

Að auki er kostur ef þú:

  • Hefur reynslu af sambærilegu ráðgjafastarfi
  • Hefur góða tækniþekkingu og getu til að setja þig inn í ný kerfi
  • Hefur reynslu af samþættingum eða verkefnum tengdum verkbókhaldi fyrirtækja
  • Hefur unnið með innleiðingum eða uppfærslum á ERP kerfum

Hjá okkur færðu:

  • Fjölbreytt og spennandi verkefni
  • Tækifæri til að þróast í ört vaxandi tækniumhverfi
  • Aðgang að nýjustu lausnum Microsoft
  • Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi
  • Öflugt teymi sérfræðinga og góðan starfsanda
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur24. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Austursíða 6, 603 Akureyri
Faxatorg, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business Central
Starfsgreinar
Starfsmerkingar