Landsnet
Landsnet

Sérfræðingur í viðskiptaþróun

Mótaðu framtíð raforkukerfisins með gögnum og greiningum

Við hjá Landsneti leitum að reynslumiklum sérfræðingi í viðskiptaþróun sem vill taka þátt í að móta framtíð raforkumarkaðarins á Íslandi. Starfið felur í sér verkefni sem snúa að þróun gjaldskrár og þróun viðskiptaumhverfis raforkumarkaðarins.

Þú verður hluti af teymi viðskiptaþróunar þar sem unnið er að nýsköpun í þjónustu og viðskiptum í takt við þróun raforkumarkaðarins hérlendis og erlendis.

Helstu verkefni

  • Greining og þróun verkefna sem snúa að gjaldskrármálum, verðlagningu og þróun raforkumarkaðarins.
  • Verkefnastjórn breytinga á viðskiptaumhverfi Landsnets og innleiðing nýrra lausna.
  • Samskipti við eftirlitsaðila, viðskiptavini og aðra hagaðila raforkumarkaðarins.
  • Þátttaka í þróun raforkumarkaðarins og verkefnum tengdum markaðsvæðingu raforkumála.
  • Aðkoma að viðskiptaáætlunum, hagrænum greiningum og mati á fjárfestingaverkefnum.


Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur háskólamenntun á sviði hagfræði, viðskiptafræði eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
  • Hefur reynslu af stefnumótandi verkefnum, greiningum eða þróun viðskiptaumhverfis.
  • Hefur þekkingu á verðlagningu, gjaldskrám, markaðsmálum eða sambærilegum viðfangsefnum.
  • Hefur reynslu af verkefnastjórnun og innleiðingu breytinga.
  • Hefur sterka greiningarhæfni og góða yfirsýn.
  • Getur átt árangursrík samskipti við ólíka hagaðila og byggt upp traust samstarf.


Við bjóðum þér

  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun raforkumarkaðarins og framtíð innviða samfélagsins.
  • Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga innan Landsnets og utan þess.
  • Krefjandi og fjölbreytt verkefni þar sem stefnumótun, greiningar og breytingar fara saman.
  • Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi sem styður við þróun og nýsköpun.
  • Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
Auglýsing birt9. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar