Klasi
Klasi

Viðskiptaþróunarstjóri

Viltu taka þátt í að móta framtíðar atvinnu- og þjónustusvæði á höfuðborgarsvæðinu?

Á næstu árum mun Klasi standa að uppbyggingu nýrra atvinnu- og þjónustusvæða á lykilsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Við leitum að öflugum einstaklingi sem vill taka þátt í þeirri vegferð og byggja upp tengsl við fyrirtæki og samstarfsaðila sem verða hluti af þeirri framtíðarsýn.

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á fasteignaþróun og viðskiptaþróun sem hefur sterka hæfni til að byggja upp tengsl, greina tækifæri og laða að fyrirtæki og þjónustu sem styrkja uppbyggingu og framtíðarsýn verkefna Klasa.

Þetta er nýtt starf hjá félaginu og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tengja saman fasteignaþróun, atvinnulíf og markaðinn. Viðkomandi verður þátttakandi í að móta hvernig ný atvinnu- og þjónustusvæði þróast og byggjast upp til framtíðar.


Helstu verkefni

  • Greina markaðstækifæri og kortleggja mögulega viðskiptavini og samstarfsaðila
  • Byggja upp og rækta tengsl við fyrirtæki, rekstraraðila og aðra hagaðila
  • Greina þarfir viðskiptavina og tengja þær við þróunarverkefni Klasa
  • Kynna og markaðssetja atvinnu- og þjónusturými á uppbyggingarsvæðum félagsins
  • Taka þátt í gerð viðskiptalíkana, útleiguáætlana og kynningarefnis
  • Annast samskipti og eftirfylgni við núverandi og væntanlega viðskiptavini.


Markaðs- og kynningarmál

  • Taka þátt í að móta markaðssetningu uppbyggingarsvæða Klasa
  • Hafa umsjón með kynningu verkefna á vefsíðum og samfélagsmiðlum
  • Stuðla að sterkri og samræmdri framsetningu vörumerkis félagsins
  • Hafa yfirumsjón með sölusíðum og öðru stafrænu kynningarefni


Við leitum að einstakling sem

  • Hefur reynslu af viðskiptaþróun, sölu og markaðsmálum
  • Hefur sterka hæfni í tengslamyndun og samskiptum
  • Hefur góða viðskiptalega hugsun og skilning á þörfum fyrirtækja
  • Er sjálfstæður, drífandi og lausnamiðaður
  • Hefur áhuga á fasteignaþróun, borgarþróun og uppbyggingu atvinnusvæða
  • Nýtur þess að vinna með fjölbreyttum hópi samstarfsaðila


Tækifæri í starfi

  • Taka þátt í uppbyggingu mikilvægra framtíðarverkefna
  • Áhrif á þróun nýrra atvinnu- og þjónustusvæða
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Öflugt teymi og faglegt starfsumhverfi


Umsóknarfrestur er til og með 30. júní, 2026.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir áhuga og hæfni til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) og Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]).

Kynntu þér Klasa og framtíðarverkefni félagsins á www.klasi.is og www.borgarhofdi.is.

Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar