

Forstöðumaður kerfisþróunar og rannsókna
Leiddu greiningar og rannsóknir sem móta framtíð raforkukerfisins!
Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.
Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka.
Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar. Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð.
Forstöðumaður kerfisþróunar og rannsókna leiðir sérfræðiteymi sem gegnir lykilhlutverki í framtíðarþróun flutningskerfisins. Teymið vinnur að kerfisgreiningum, líkanagerð og rannsóknum sem styðja við stefnumótun, fjárfestingarákvarðanir og uppbyggingu raforkukerfis Íslands til framtíðar.
Viðkomandi er hluti af stjórnendateymi og tekur þátt í að móta stefnu, forgangsröðun og þróun starfseminnar.
- Leiða og þróa teymi kerfisþróunar og rannsókna
- Móta stefnu, sýn og forgangsröðun fyrir starfsemi teymisins
- Leiða greiningar, rannsóknir og líkanagerð sem styðja við framtíðarþróun flutningskerfisins
- Styðja við fjárfestingarákvarðanir með greiningum og langtímasýn
- Stuðla að nýsköpun og framþróun í nýtingu gagna, greininga og stafrænnar tækni
- Byggja upp árangursdrifna menningu, starfsþróun og samvinnu innan teymisins
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun starfsfólks og þróun teyma
- Reynsla af tengdri starfsemi og þekking á raforkukerfum er kostur
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að byggja upp samstarf og öflug teymi
- Vaxtarhugarfar, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
Íslenska
Enska










