Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða tímabundið öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf í sumar á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsfólki í 80 -100 % starfshlutfall. Starfstímabil er frá byrjun júlí til byrjun september og þarf viðkomandi að geta starfað allan þann tíma.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
  • Almenn heimilisstörf
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópska tungumálaramma
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Ágætis tölvukunnátta
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
  • Ökuréttindi skilyrði

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 664-5726, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júlí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt24. júní 2026
Umsóknarfrestur7. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Drekavellir 14, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar