Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður

Leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks

Skagafjörður óskar eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi einstakling í starf leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks. Leiðtogi er yfirmaður í málefnum fatlaðs fólks og eldra fólks í sveitarfélaginu. Í því felst m.a. fagleg stjórnun, fjárhagsstjórnun innan fjárhagsáætlunar og umsjón með þjónustu við fatlaða og aldraða íbúa sveitarfélagsins. Leiðtogi er enn fremur yfirmaður málefna fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra sbr. samstarfssamning sveitarfélaganna á svæðinu þar um. Leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks sinnir samskiptum, ráðgjöf og leiðsögn við forstöðumenn og aðra sem undir hann heyra eftir því sem við á.

Viðkomandi verður að hafa getu og vilja til að leiða og þróa þjónustu sveitarfélagsins í takt við þarfir samfélagsins. Leiðtogi situr í framkvæmdaráði og fagráði í málefnum fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra. Hann sér um ýmis samskipti við sveitarfélög á Norðurlandi vestra, stofnanir ríkisins, jöfnunarsjóð sveitarfélaga og fleiri. Eins fylgist hann með nýjungum og laga- og reglugerðasetningu á sínu sviði og er vakandi fyrir möguleikum til starfsþróunar, styrkja og samstarfs við aðra aðila innan eða utan sveitarfélagsins.

Leiðtogi vinnur náið með sviðsstjóra og öðrum stjórnendum og starfsmönnum á fjölskyldusviði sem og öðrum stjórnendum sveitarfélagsins. Leiðtogi er tengiliður stjórnenda stofnana við sviðsstjóra. Um 100% starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leiðtogi heyrir undir sviðsstjóra fjölskyldusviðs og er með starfsstöð í ráðhúsinu á Sauðárkróki.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis-, menntavísinda eða skyldra greina og/eða starfstengd réttindi sem nýtast í starfi.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla á sviði reksturs og mannaforráða er kostur.
  • Þekking á helstu lögum er varða þjónustu og úrræði í félagsþjónustu, málefnum fatlaðs fólks og eldra fólks. Þekking á stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og mikil reynsla af teymisvinnu.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Almenn ökuréttindi.
  • Hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Lilja Hallsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, [email protected], s. 455 6088.

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins (laus störf). Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi, ferilskrá og afrit af prófskírteini/prófskírteinum.

Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Auglýsing birt24. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar