

Leiðtogi framleiðsluteymis í steypuskála / Coach for the Production Team in the Casthouse
Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf leiðtoga framleiðsluteymis í steypuskála. Meginverkefni leiðtogans eru að leiða teymi, sinna mönnun og öðrum stjórnunartengdum verkefnum, fylgja eftir framleiðsluáætlunum og taka virkan þátt í daglegum verkefnum við framleiðslu.
Á sama tíma og við hvetjum öll þau sem uppfylla þessi skilyrði til að sækja um, teljum við að fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks og ólík sjónarmið styrki okkur sem heild.
Í Fjarðaáli er lögð áhersla á jafnrétti. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til þess að sækja um stöðuna.
Sæktu um og taktu þátt í að móta framtíðina með okkur!
Verksvið
-
Lágmarkar áhættu og vinnur að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi.
-
Leiðbeinir einstaklingum í teyminu til að styrkja þá og efla.
-
Vinnur að góðum starfsanda, eflir og hvetur sitt teymi til dáða.
-
Framfylgir framleiðsluáætlunum.
-
Fylgir eftir þeim væntingum sem gerðar eru til framleiðslustarfsmanna eins og þær eru skilgreindar í aðal- og aukahlutverkalýsingum.
-
Tekur þátt í ráðningu nýrra starfsmanna.
-
Vinnur að úrlausn ágreiningsmála í samvinnu við aðra stjórnendur og mannauðsteymi.
-
Er leiðandi í umbótastarfi og rannsóknum atvika til að auka öryggi og bæta framleiðsluferla.
-
Sinnir verkefnum innan síns ferlis.
-
Sér til þess að umgengni á sínu framleiðslusvæði sé til fyrirmyndar.
Dagleg verk
-
Hefur viðveru á framleiðslugólfi að jafnaði 50% af sínum vinnutíma.
-
Veitir endurgjöf á hverri vakt til þeirra starfsmanna sem eru á vakt hverju sinni.
-
Gerir úttektir á hverri vakt á öryggismálum, umhverfi, verklagi, umgengni o.fl.
-
Fylgir eftir starfsþróun starfsmanna og tekur að lágmarki tvö starfsþróunarsamtöl við hvern starfsmann á ári.
-
Tryggir rétta mönnun vakthópa, þjálfun þeirra og vinnuskil.
Ábyrgð í starfi
Leiðtogi starfar í umboði framkvæmdastjóra ferlis. Meginábyrgð leiðtoga er að halda utanum framleiðsluteymi.
Leiðtogi ber ábyrgð verkstjóra skv. lögum nr. 46/1980, Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Menntun og/eða réttindi sem krafist er
Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um menntun, en öll menntun sem gæti nýst í starfi er kostur.
Reynsla sem krafist er
Starfsreynsla á vinnumarkaði, a.m.k. 5 ár. Starfsreynsla í framleiðslufyrirtæki er kostur. Stjórnunarreynsla er kostur.
Hæfni sem krafist er
-
Heilindi: Hæfni til að ávinna sér traust innan fyrirtækisins með því að vinna samkvæmt gildum og vinnustaðarsáttmála Alcoa Fjarðaáls.
-
Leiðtogahæfni: Hæfni til að sýna ábyrgð í verki, stuðla að öflugri liðsheild, sýna frumkvæði, leiða breytingar og fá samstarfsfólk til liðs við sig.
-
Samskiptahæfni: Hæfni til að skapa jákvæða menningu á vinnustaðnum og hvetja starfsfólk til dáða. Hæfni til að tryggja upplýsingaflæði og viðhafa gagnsæi í ákvarðanatöku.
-
Árangursmiðun: Hefur hæfni til að tryggja skilvirka framkvæmd áætlana og eftirfylgni með verkum.
-
Góð almenn tölvufærni og geta til að tileinka sér notkun tölvukerfa.
-
Skipulagshæfileikar.
- Mötuneyti
- Fríar rútuferðir til og frá vinnu
- Heilsutengdir styrkir
- Velferðaþjónusta
Íslenska
Enska






