
Arctic Fish
Arctic Fish framleiðir hágæða lax í seiðaeldisstöð í Tálknafirði, sjókvíum á Vestfjörðum sem pakkað er í hátækni laxavinnslu félagsins í Bolungarvík. Markmiðið er að halda áfram að vaxa og byggja upp sjálfbæran og arðbæran rekstur þar sem eldið er í sátt við samfélag og umhverfi. Arctic Fish telur að lykillinn að velgengni fyrirtækisins muni byggja á metnaðarfullu starfsfólki sem leggur metnað sinn í að bjóða besta mögulega lax frá Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa alls um 130 manns og eru höfuðstöðvar þess á Ísafirði. Félagið er að 54% hlut í eigu Mowi ASA og 36% hlut í eigu Síldarvinnslunnar á Neskaupstað.
Móðurfélag Arctic Fish, Mowi ASA er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með höfuðstöðvar í Bergen í Noregi, en félagið er stærsti framleiðandi eldislax í heiminum. Mowi ASA starfar í meira en 20 löndum og framleiðir um fimmta hvern lax sem seldur er í heiminum eða um 600.000 tonn á ári. Félagið hefur fengið viðurkenningu sem sjálfbærasti próteinframleiðandi í heimi og var á lista Times yfir 500 sjálfbærustu fyrirtæki í heimi árið 2025.

Mannauðsstjóri
Arctic Fish leitar að öflugum og framsýnum mannauðsstjóra til starfa á Ísafirði. Um er að ræða lykilhlutverk í vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki þar sem lögð er áhersla á sterka vinnustaðamenningu, fagleg vinnubrögð og jákvæða starfsupplifun.
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á mannauðsmálum, vill styðja við stjórnendur og starfsfólk og taka virkan þátt í áframhaldandi þróun fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk
- Innleiðing og eftirfylgni með stefnu og verklagi í mannauðsmálum
- Umsjón með starfsferlinum, frá ráðningu að starfslokum
- Ábyrgð á vinnuvernd og öryggismálum
- Stuðla að jákvæðri vinnustaðamenningu með áherslu á vellíðan og þátttöku
- Greining á mannauðsferlum og lykilmælikvörðum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af mannauðsmálum
- Heildræn og stefnumótandi hugsun ásamt ríkri ábyrgðartilfinningu
- Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að ná árangri
- Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Góður talnaskilningur og geta til gagnadrifinnar ákvarðanatöku
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Auglýsing birt15. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sindragata 10, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Svæðisstjóri óskast í vinnu og virkni
Ás styrktarfélag

Skrifstofustjóri í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli

Skrifstofustjóri - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Bæjarstjóri
Fjallabyggð

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Suðurnesjabær

Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps
Súðavíkurhreppur

Stjórnandi í framkvæmdum
Ístak hf

Svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum
Eimskip

Akstursstjóri gámaaksturs - Höfuðborgarsvæðið
Eimskip

Verkstæðisstjóri
Dekkjahöllin ehf

Sérfræðingur í fræðslumálum
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið

Bæjarstjóri
Grindavíkurbær