
Bæjarstjóri
Vilt þú leiða öflugt samfélög á Siglufirði og Ólafsfirði?
Sveitarfélagið Fjallabyggð leitar að framsýnum og metnaðarfullum leiðtoga til að gegna starfi bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gegnir lykilhlutverki í þróun sveitarfélagsins og leiðir daglegan rekstur þess í samstarfi við bæjarstjórn, starfsfólk og íbúa. Leitað er að einstaklingi sem hefur hæfni til að leiða fjölbreytt verkefni, halda uppi háu þjónustustigi, byggja upp traust samstarf og skapa sameiginlega sýn um áframhaldandi uppbyggingu og velferð samfélagsins.
Fjallabyggð er öflugt sveitarfélag á utanverðum Tröllaskaga með fjölbreytt tækifæri til uppbyggingar. Sveitarfélagið býr yfir öflugu atvinnulífi, einstökum náttúrugæðum og fjölbreyttri þjónustu sem skapar góð skilyrði til búsetu og atvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á daglegum rekstri sveitarfélagsins og framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar.
- Vinnur að stefnu og framtíðarsýn í málefnum Fjallabyggðar.
- Ber ábyrgð á fjármálastjórn, rekstri og áætlanagerð sveitarfélagsins ásamt skrifstofustjóra.
- Vinnur með bæjarstjórn og nefndum að undirbúningi mála og stefnumótun.
- Eflir samstarf og þjónustu við íbúa, atvinnulíf, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila og tryggir skilvirka og góða þjónustu.
- Stuðlar að öflugri liðsheild og jákvæðri vinnustaðamenningu.
- Kemur fram fyrir hönd sveitarfélagsins og gætir hagsmuna þess á opinberum vettvangi.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Farsæl reynsla af rekstri, fjármálum, stjórnun og stefnumótun.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Hæfni til að leiða breytingar og þróun, skapa traust og vinna með ólík sjónarmið.
- Framsýni, metnaður og frumkvæði.
- Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og sveitarstjórnarmálum er kostur.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
Um Fjallabyggð:
Siglufjörður og Ólafsfjörður mynda Fjallabyggð með rúmlega 2.000 íbúa. Fjallabyggð er öflugt og framsækið sveitarfélag á utanverðum Tröllaskaga.
Í Fjallabyggð fara náttúra, saga og nútímasamfélag saman. Þar er öflug starfsemi á sviði sjávarútvegs, ferðaþjónustu, menningar og þjónustu, auk þess sem sveitarfélagið býður upp á fjölbreytta þjónustu, gott íþrótta- og tómstundastarf og frábært umhverfi fyrir fjölskyldur og fyrirtæki.
Fjallabyggð hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á uppbyggingu samfélagsins, aukna þjónustu og að skapa aðlaðandi umhverfi til búsetu og atvinnu. Sveitarfélagið býr yfir miklum mannauði og sóknarfærum.
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).
Enska
Íslenska










