Seltjarnarnesbær
Seltjarnarnesbær
Seltjarnarnesbær

Seltjarnarnesbær - launafulltrúi

Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða launafulltrúa á Fjármálasvið í 50% starf. Leitað er eftir kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni og býr yfir getu til að vinna sjálfstætt. Starfsstöðin er á nýjum bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Launafærslur og launakeyrslur
  • Skráning, afstemmingar og eftirlit með launagögnum
  • Aðstoð við túlkun kjarasamninga og eftirfylgni þeirra
  • Þjónusta og leiðbeiningar við stjórnendur og starfsfólk vegna launa- og kjaramála
  • Samskipti við innri og ytri hagaðila vegna launatengdra fyrirspurna
  • Þátttaka í umbótaverkefnum og innleiðingu nýrra ferla
  • Skráning og utanumhald starfsmannaupplýsinga í kerfum, t.d. við ráðningar, starfslok, uppfærslu eða breytingum á ráðningarskilmálum
  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærilegt nám
  • Diplomanám á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
  • Haldgóð reynsla af launavinnslu
  • Góð almenn tölvukunnátta og þekking á Microsoft kerfum er kostur
  • Þekking á grundvallarreglum í vinnurétti og kjarasamningum er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Þekking og kunnátta H3 launakerfi, Vinnustund, ráðningarkerfinu 50skills og GoPro mála- og skjalakerfi er kostur
  • Talnagleggni og nákvæmni
  • Færni í samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur26. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar