
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Mannauðs- og starfsumhverfissvið hefur yfirumsjón með mannauðsmálum Reykjavíkurborgar og styður við stefnu og megináherslur borgaryfirvalda.
Starfsfólk sviðsins hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd mannauðsstefnu, tryggir samræmi í framkvæmd og veitir stjórnendum ráðgjöf. Auk þess annast sviðið mannauðsþjónustu fyrir miðlæga stjórnsýslu í Ráðhúsi og annast gerð kjarasamninga. Auk þess leggur sviðið ríka áherslu á stöðugt og gott samstarf við stjórnendur og mannauðsþjónustu sviða með það að markmiði að auka skilvirkni og gæði þjónustunnar og leggja grunn að góðri vinnustaðamenningu.

Sérfræðingur í fræðslumálum
Reykjavíkurborg leitar að sérfræðingi á sviði fræðslumála í 100% starf á skrifstofu starfsþróunar og starfsumhverfis. Meðal verkefna eru umsjón með sameiginlegum staðnámskeiðum og gerð stafræns fræðsluefnis fyrir Torgið stafrænt fræðslukerfi Reykjavíkurborgar.
Skrifstofan er hluti af mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar og ber ábyrgð á og veitir ráðgjöf um fræðslu og innri miðlun, viðverumál og heilsueflingu, öryggi og vinnuvernd. Mannauðs- og starfsumhverfissvið er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Mannauðsstefna Reykjavíkurborgar hefur þá framtíðarsýn að Reykjavíkurborg sé einn vinnustaður þar sem öflugu starfsfólki er búið gott starfsumhverfi og tækifæri til að blómstra í samvinnu við sterka stjórnendur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með forystunámi Reykjavíkurborgar, þ.m.t. skipulag og þróun til framtíðar.
- Umsjón með íslenskukennslu á starfsstöðum, Bara tala og samfélagsfræðslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna.
- Framleiðsla og miðlun á fræðsluefni í Torginu stafrænu fræðslukerfi, Viva Engage og á innri vef.
- Öflun fræðslustyrkja og utanumhald um fjármögnun og stöðu verkefna.
- Þátttaka í vinnuhópum og öðrum verkefnum á sviði mannauðsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála æskileg.
- Reynsla af fræðslumálum starfsfólks er skilyrði og önnur mannauðsreynsla æskileg.
- Reynsla af vinnu í mannauðskerfum/fræðslukerfum eða framleiðsla á stafrænu fræðsluefni er kostur.
- Færni í helstu Office forritum og áhugi á að læra á nýtt fræðslukerfi.
- Sjálfstæði og frumkvæði.
- Ríkur þjónustuvilji og færni í samvinnu og samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 og enskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
- Áhugavert starf við eflingu stjórnenda og starfsfólks
- 36 stunda vinnuviku
- Heilsustyrk
- Frítt í sund og aðgang að söfnum
- Samgöngusamning
- Gott mötuneyti
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Tjarnargata 11, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




