Skatturinn
Skatturinn

Mannauðssérfræðingur

Við leitum að öflugum og áhugasömum sérfræðingi til að ganga til liðs við mannauðsteymið okkar á sviði mannauðs- og fjármála í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.

Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Starfið heyrir undir deildarstjóra mannauðs og felur í sér tækifæri til þess að koma að fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála innan stofnunar þar sem starfsfólk sinnir ólíkum og fjölbreyttum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og leiðbeiningar til stjórnenda og starfsfólks í fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála
  • Umsjón með ráðningaferlum og móttöku nýs starfsfólks
  • Vinnustaðagreiningar og stuðningur við umbætur í vinnuumhverfi
  • Þátttaka í þróunar- og úrbótaverkefnum á sviði mannauðsmála, þ. á m. tengdum stafrænum lausnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefnum á sviði  mannauðsmála
  • Þekking á og/eða reynsla af mannauðs- og kjaramálum hjá opinberum stofnunum er kostur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og fagmennska 
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar