
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Mannauðssérfræðingur
Vilt þú taka þátt í að þróa mannauðsstarf í öflugu þjónustufyrirtæki þar sem fólk og framþróun skipta máli?
Við leitum að mannauðssérfræðingi til að taka þátt í metnaðarfullu mannauðstarfi og áframhaldandi þróun mannauðsmála hjá fyrirtækinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur þátt í daglegum rekstri mannauðsmála og ráðgjöf til stjórnenda í mannauðsferlum og verklagi.
- Þróun, innleiðing og viðhald í mannauðskerfum og mannauðsferlum með áherslu á stafrænar lausnir, sjálfvirkni og gagnanýtingu.
- Umsjón með ráðningarferlum þ.m.t. auglýsingum, samræmdri framkvæmd og eftirfylgni.
- Ráðgjöf og leiðbeiningar til stjórnenda og starfsfólks.
- Umsjón með starfsmannagögnum og eftirlit með gæðum upplýsinga og gagna í mannauðskerfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla af mannauðsstörfum, sérstaklega "HR Operations".
- Góð þekking á kjarasamningum og vinnumarkaðsmálum.
- Kerfishugsun, greiningarhæfni og umbótahugsun.
- Sjálfstæði, drifkraftur og lausnamiðuð nálgun.
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
- Mjög góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Reynsla af mannauðskerfum, gagnavinnu og sjálfvirknivæðingu.
- Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð.
Auglýsing birt23. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 17, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)




