

Sérkennari í Kársnesskóla
Kársnesskóli óskar eftir sérkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi
Kársnesskóli er framsækinn grunnskóli í vesturbæ Kópavogs. Hann byggir á gamalli sögu og góðum gildum en er nú nýr skóli með um 400 nemendur í 5. - 10. bekk. Við skólann starfa um 60 starfsmenn og þar ríkir góður starfsandi.
Í Kársnesskóla er teymiskennsla og áhersla á fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að allir nemendur nái árangri. Unnið er skv. uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Allir nemendur eru með spjaldtölvur.
Gildi skólans eru virðing, þekking, ábyrgð og ánægja.
Ráðningartími og starfshlutfall Tímabundin 100% staða til áramóta 26/27, ráðning frá 1. ágúst 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sérkennsla í stærðfræði á elsta stigi
- Gerð einstaklingsnámskráa og eftirfylgni við þær
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu
- Reynsla af starfi með nemendum með sérþarfir æskileg
- Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu
- Áhugi á að vinna í góðu teymi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
- Einlægur áhugi á að vinna með unglingum
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar sveitarfélagsins.
Upplýsingar gefur Sigrún Valdimarsdóttir skólastjóri í síma 696-0297 og í gegnum netfangið [email protected]
Öll, óháð kyni eru hvött til að sækja um starfið.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá.
Íslenska










