
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Launadeild: Sérfræðingur
Launadeild Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða sérfræðing. Um er að ræða 100% starf sem er tímabundið til 31.12.2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 01.10.2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Hlutverk launadeildar er launavinnsla og launagreiðslur til starfsmanna Akureyrarbæjar í samræmi við gildandi kjarasamninga, lög og reglur og samþykktir Akureyrarbæjar. Veitt er miðlæg þjónusta við stjórnendur og launþega, upplýsingagjöf og ráðgjöf til starfsmanna og stjórnenda, kennsla og þjálfun stjórnenda, eftirlit, túlkun og framkvæmd kjarasamninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Launavinnsla.
- Upplýsingagjöf til stjórnenda og launþega varðandi kjaratengd mál.
- Útreikningar á réttindum starfsmanna skv. kjarasamningum.
- Eftirfylgni með framkvæmd kjarasamninga og verklagsreglna.
- Teymis- og umbótavinna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf (BA/BS) sem nýtist í starfi.
- Reynsla af launavinnslu og/eða bókhaldi æskileg.
- Reynsla af skrifstofustörfum kostur.
- Þekking á kjarasamningum sveitarfélaga kostur.
- Þekking og reynsla af Vinnustund kostur.
- Þekking og reynsla af Kjarna launa- og mannauðskerfi kostur.
- Þekking og reynsla af skjalavistunarkerfinu OneSystems eða sambærilegu kerfi kostur.
- Hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum bæði munnlega og skriflega.
- Mjög góð tölvukunnátta.
- Geta og vilji til að tileinka sér nýjungar.
- Frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð.
- Samstarfsvilji og samskiptafærni.
- Færni til að vinna undir álagi og tímapressu.
- Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLaunavinnslaMannleg samskiptiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Þjónusta og þróun: Verkefnastjóri þjónustu
Akureyri

Leikskólinn Tröllaborgir: Starfsmaður í stoðþjónustuteymi
Akureyri

Glerárskóli: Stuðningsfulltrúi / Starfsfólk með stuðning í skólastarfi
Akureyri

Glerárskóli: Skólaliði
Akureyri

Glerárskóli: Umsjónarkennari á yngsta stigi
Akureyri

Giljaskóli: Grunnskólakennari á miðstigi
Akureyri
Sambærileg störf (12)

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf

Sérfræðingur í umsýslu endurgreiðslna
Kvikmyndamiðstöð Íslands

Bókari
Plús ehf.

Skrifstofu- og mannauðsfulltrúi – Atlas Verktakar ehf.
Atlas Verktakar ehf

Þjónustufulltrúi
Bayern líf

Sérfræðingur í launavinnslu (Payroll Specialist)
Rapyd Europe hf.

Framkvæmdastjóri Dansíþróttasambands Íslands
Dansíþróttasamband Íslands

Viðskiptastjóri í útflutningsdeild
Smyril Line Ísland ehf.

Þjónustu- og viðburðastjóri óskast hjá Vinnustofu Kjarvals.
Vinnustofa Kjarval

Verkefnastjóri á lifandi og kraftmiklum vinnustað
Þekkingarnet Þingeyinga

Þjónustufulltrúi
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

TDK Foil leitar eftir starfsmanni í móttöku fyrirtækisins á Akureyri
TDK Foil Iceland ehf