Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?

Hjá Umhverfis- og orkustofnun er laust til umsóknar fullt starf sérfræðings í teymi hringrásarhagkerfis, til að sjá um verkefna stjórnun Evrópuverkefnis um hringrásarmál.

Um er að ræða samstarfsverkefni 17 aðila, stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga. Verkefnið snýr að innleiðingu stefnunnar Í átt að hringrásarhagkerfi. Stefnan hefur meðal annars þann tilgang að koma á öflugu hringrásarhagkerfi á Íslandi, draga úr magni úrgangs, auka endurvinnslu, minnka sóun, efla nægjusemi og ýta undir ábyrga framleiðslu.

Viðkomandi mun bera ábyrgð á daglegri verkefnastýringu, samhæfingu samstarfsaðila og eftirfylgni með verkefninu. Starfið felur meðal annars í sér að halda utan um verkáætlanir og framvindu, miðlun úr verkefninu, tryggja skil á gögnum og skýrslum til styrkveitanda og vinna náið með sérfræðingum í teymi hringrásarhagkerfis og öðrum samstarfsaðilum. Verkefnið er styrkt til 6 ára.

Teymi hringrásarhagkerfis sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði úrgangsforvarna, úrgangsmála, umhverfismerkisins Svansins og sjálfbærrar neyslu og framleiðslu. Teymið vinnur að innleiðingu stefnu stjórnvalda um hringrásarhagkerfi í nánu samstarfi við atvinnulíf, sveitarfélög og aðrar opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring LIFE-verkefnisins og samstarf um önnur verkefni á sviði hringrásarhagkerfis
  • Samhæfing samstarfs ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og annarra samstarfsaðila verkefnisins, þar á meðal skipulag funda, vinnustofa og samráðsvettvangs
  • Samskipti við styrkveitanda (CINEA)
  • Eftirfylgni með aðgerðum, tímaáætlunum, markmiðum og skýrslugjöf, þar á meðal gerð stöðuskýrslna og annarra gagna tengd verkefninu  
  • Þátttaka í þróun og innleiðingu verkefna sem styðja við hringrásarhagkerfi á Íslandi
  • Miðlun um framvindu verkefnisins til hagaðila og þátttakanda verkefnisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Til dæmis í umhverfisfræðum eða umhverfisverkfræði
  • Þekking á hringrásarhagkerfi og brennandi áhugi á málaflokknum er kostur.
  • Reynsla af rekstri stórra verkefna, t.d. Evrópuverkefna, er æskileg
  • Reynsla af því að stýra hagaðilasamstarfi er kostur
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð greiningarhæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir til árangurs
Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar