atNorth
atNorth

Sérfræðingur í viðhaldsstjórnun / CMMS Specialist

Viltu vera í lykilhlutverki í að þróa og efla viðhaldsstjórnun hjá atNorth á Akureyri?

Við leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur mikinn áhuga á skipulagningu og stýringu verkefna, nær að vinna vel með ólíkum hópum og fá fólk með sér, en setur jafnframt skýrar kröfur um gæði og framkvæmd.

Í þessu hlutverki verður þú lykilaðili í að tryggja gagnagæði, viðhalda skýrum ferlum og skilvirka framkvæmd viðhalds. Markmiðið er að styrkja rekstraröryggi, auka áreiðanleika búnaðar og styðja við öruggan vöxt starfseminnar.

Um starfið

Í kröfuhörðu umhverfi gagnavera, þar sem kröfur um rekstraröryggi, öryggi og áreiðanleika eru miklar, gegnir viðhaldsstjórnun lykilhlutverki.

Sérfræðingur í viðhaldsstjórnun ber ábyrgð á daglegum rekstri og uppfærslum viðhaldskerfis starfstöðvar atNorth á Akureyri.

Starfið felur í sér að halda utan um búnað og gögn, forgangsraða og skipuleggja viðhaldsverkefni og tryggja samræmda framkvæmd í nánu samstarfi við rekstur, tæknistjóra, verkefnateymi og verktaka.

Lögð er áhersla á að öryggi og gæði séu órjúfanlegur hluti af daglegri framkvæmd, með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.

Hefur þú áhuga?

Ef þú hefur áhuga á viðhaldi, kerfum, gagnagæðum og stöðugum umbótum, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og þróun viðhaldskerfis, með ábyrgð á gagnagæðum, uppsetningu eigna og stöðlun gagna
  • Móttaka, forgangsröðun, úrvinnsla og skipulagning viðhaldsverkefna, með skýra sýn á heildarflæði og samhæfingu
  • Þróun og eftirfylgni með fyrirbyggjandi viðhaldi og viðhaldsáætlunum
  • Samhæfing og eftirfylgni með framkvæmd viðhaldsverkefna, bæði innan teymis og hjá verktökum
  • Undirbúningur vinnuleyfa, áhættumata og verklýsinga eftir því sem við á
  • Fylgja eftir lykilmælikvörðum og greina árangur, með áherslu á umbætur í ferlum og framkvæmd
  • Taka þátt í þróun á verklagi, leiðbeiningum og stöðlum
  • Styðja við úttektir, gæðamál og ISO-kröfur
  • Þjálfa og styðja notendur í kerfinu og taka þátt í þróun á verklagi og stöðlum
Við leitum að einstaklingi sem hefur
  • Reynslu af viðhaldskerfum (CMMS)
  • Góða þekkingu á viðhaldi, eignastýringu og verkbeiðnaferlum
  • Reynslu úr gagnaverum, iðnaði, orkufyrirtækjum eða öðrum tæknilegum rekstri þar sem kröfur um áreiðanleika og agaða framkvæmd eru miklar
  • Greiningarhæfni og lausnamiðaða nálgun í vinnubrögðum
  • Hæfni til að vinna þvert á teymi og samræma ólíka hagsmunaaðila
  • Góða samskiptafærni og skipulagshæfni
  • Góða kunnáttu í íslensku og ensku
Kostur er ef þú hefur
  • Tæknimenntun eða sambærilega reynslu
  • Reynslu af fyrirbyggjandi viðhaldi og áreiðanleikastjórnun
  • Góðan skilning á tæknibúnaði og rekstri innviða
  • Reynslu úr rekstrarumhverfi þar sem kröfur um öryggi, HSE og agaða framkvæmd eru miklar
  • Reynslu af skýrslugerð, mælaborðum og gagnagreiningu, með áherslu á umbætur og ákvarðanatöku
  • Reynslu af uppbyggingu og viðhaldi gagnagæða í viðhaldskerfum
  • Reynslu af á ISO-stjórnunarkerfum og gæðamálefnum
Af hverju atNorth?

Hjá atNorth færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á hvernig viðhald og rekstur er skipulagður í ört vaxandi alþjóðlegu fyrirtæki.

Við bjóðum upp á:

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni.
  • Gott starfsumhverfi og öflugt samstarf.
  • Tækifæri til að móta staðla og verklag.
  • Starfsþróun og símenntun.
  • Þátttöku í rekstri mikilvægra innviða.
  • Samkeppnishæf laun og góð starfskjör.
Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar