Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Viltu starfa sem kerfisstjóri hjá Wise á Akureyri?

Wise leitar að Microsoft kerfistjóra (System Administrator) í öflugt teymi á Akureyri

Ert þú kraftmikill og sjálfstæður einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna í hóp og hefur góða innsýn inn í kerfisrekstur og þarfir viðskiptavina?
Wise leitar að öflugum sérfræðingi með ástríðu fyrir upplýsingatækni og kerfisrekstri til að starfa með okkur að áframhaldandi uppbyggingu á upplýsingakerfa viðskiptavina okkar.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með nýjustu tækni í Microsoft vistkerfinu, veita faglega ráðgjöf og tryggja að rekstur og þjónusta sé ávallt í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á Microsoft Windows netþjónum (Active Directory, Entra ID, Intune, Defender) hjá viðskiptavinum og Wise.
  • Virk þátttaka í hönnun og þróun nýrra lausna til að tryggja að Wise bjóði ávallt það nýjasta og besta í Microsoft lausnum.
  • Lausnamiðuð ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini.
  • Umsjón með eftirfylgni verkefna þar sem fagmennska og lipurð í lausnaleit er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 3+ ára reynsla af UT rekstri með áherslu á Microsoft lausnir.

  • Góð þekking á Windows netþjónum og AD umhverfa, ásamt Entra ID, Intune og Defender.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi þjónustulund.
  • Geta til að vinna í hóp og miðla upplýsingum á skýran hátt á íslensku og ensku.
  • Microsoft vottanir (kostur):
    • Windows Server Hybrid Administrator Associate (AZ-802)
    • Endpoint Administrator (MD-102)
    • Information Security (SC-401)
    • Identity and Access Administrator (SC-300)
    • Microsoft 365 Administrator Expert (MS-102)
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hafnarstræti 91, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Kerfishönnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar