Auðkenni ehf.
Auðkenni ehf.

Kerfisstjóri / IT Administrator

Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum kerfisstjóra til að ganga til liðs við teymið okkar. Starfið felur í sér rekstur, viðhald og þróun upplýsingakerfa fyrirtækisins ásamt stuðningi við starfsfólk og þjónustur sem snúa að viðskiptavinum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með Linux- og Windows-kerfum
  • Uppsetning, rekstur og viðhald sýndarvéla
  • Uppsetning, uppfærsla og öryggisviðhald netþjóna
  • Innri upplýsingatækniaðstoð við starfsfólk
  • Stuðningur við þjónustur fyrirtækisins þegar rekstrarvandamál koma upp
  • Vöktun og eftirlit með kerfum og innviðum
  • Almenn netrekstrarvinna, bilanagreining og viðhald
  • Umsjón með eldveggjum og netöryggi
  • Þátttaka í sjálfvirknivæðingu uppsetninga, uppfærslna og rekstrarferla
  • Gerð og viðhald skriftna með Python, Ansible og Bash
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af rekstri Linux- og/eða Windows-umhverfa
  • Þekking á sýndarvæðingu og netþjónarekstri
  • Góð þekking á netkerfum og bilanagreiningu
  • Reynsla af sjálfvirknivæðingu og skriftun
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni

Kostur ef umsækjandi hefur þekkingu á

  • Nagios, Kibana eða öðrum vöktunar- og greiningarkerfum
  • Elasticsearch rekstri, uppfærslum og viðhaldi
  • SQL gagnagrunnum og gagnagrunnsumsýslu
  • Gámaumhverfum á borð við Docker eða Podman
  • CI/CD lausnum og verkfærum eins og Jenkins
  • Registry lausnum, t.d. Sonatype
  • Load balancing lausnum, sérstaklega F5
Fríðindi í starfi

• Niðurgreiddur hádegsimatur í mötuneyti
• Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma 
• Frábær starfsandi, reglulegir viðburðir og virkt starfsmannafélag
• Heilsustyrkur og símastyrkur og önnur fríðindi í gegnum stéttarfélag

Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar