TACTICA
TACTICA
TACTICA

Hópstjóri Kerfisrekstrar

Ert þú lausnamiðaður einstaklingur sem vill stíga næsta skref og leiða hóp?

Við hjá Tactica leitum við að öflugum hópstjóra sem tekur að sér daglega forystu innan tölvudeildar. Þú vinnur náið með stjórnendum og samstarfsfólki að því að halda kerfunum okkar gangandi, leysa verkefni hratt og tryggja að viðskiptavinir fái framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg verkstjórn, þú sérð um að aðstoða hópinn við að skipuleggja og forgangsraða verkefnum, fylgir eftir framvindu og tryggir að hlutirnir komist í höfn í samvinnu við verkefnastjóra.
  • Stuðningur við teymið, þú ert til staðar fyrir samstarfsfólkið, leiðbeinir, miðlar þekkingu og styður við þróun þeirra í starfi.
  • Þátttaka í verkefnum, þú tekur virkan þátt í tæknilegum verkefnum, þú ert mikilvægur hluti af hópnum.
  • Þjónusta við notendur, þú tryggir skjót og fagleg viðbrögð við þjónustubeiðnum og kemur málum í réttan farveg.
  • Rekstur og eftirlit, þú fylgist með kerfum, vélbúnaði og hugbúnaði, greinir frávik og bregst við áður en þau verða að vandamálum.
  • Samstarf þvert á deildir, þú átt í samskiptum við aðrar einingar og tryggir að tölvudeildin styðji vel við starfsemina.
  • Umbætur, þú stuðlar að bættum vinnubrögðum með því að koma auga á það sem má bæta í verkferlum og tekur þátt í að innleiða öfluga vinnustaðarmenningu.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur góða tæknilega þekkingu og reynslu af upplýsingatækni.
  • Á auðvelt með að vinna með fólki og nýtur þess að styðja samstarfsfólk.
  • Er skipulagður, lausnamiðaður og þrífst í fjölbreyttum verkefnum.
  • Hefur áhuga á að stíga inn í leiðtogahlutverk, fyrri stjórnunarreynsla er kostur en ekki skilyrði.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Tækifæri til að þróast í öflugu tækniumhverfi
  • Skemmtilegt og óþvingað vinnuumhverfi
  • Samgöngustyrkur
  • Farsímaáskrift og nettenging
  • Aðgengi að heitum mat í hádeginu
  • Orkudrykkir eða sódavatn, við eigum það allt!
Auglýsing birt12. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar