Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.
Wise lausnir ehf.

Viltu starfa sem sérfræðingur í skýjalausnum hjá Wise?

Wise leitar að Cloud Specialist (Microsoft 365) í öflugt teymi

Ert þú kraftmikill og sjálfstæður einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna í hóp og hefur góða innsýn inn í kerfisrekstur og þarfir viðskiptavina?
Wise leitar að öflugum sérfræðingi með ástríðu fyrir upplýsingatækni og kerfisrekstri til að starfa með okkur að áframhaldandi uppbyggingu á skýjaumhverfum viðskiptavina okkar.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með nýjustu tækni í Microsoft vistkerfinu, veita faglega ráðgjöf og tryggja að rekstur og þjónusta sé ávallt í hæsta gæðaflokki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á Microsoft skýjaþjónustum (M365, Entra ID og Intune) hjá viðskiptavinum og Wise.
  • Virk þátttaka í hönnun og þróun nýrra lausna til að tryggja að Wise bjóði ávallt það nýjasta og besta í Microsoft lausnum.
  • Lausnamiðuð ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini.
  • Umsjón með eftirfylgni verkefna þar sem fagmennska og lipurð í lausnaleit er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 3+ ára reynsla af IT rekstri með áherslu á Microsoft skýjaþjónustur.
  • Góð þekking á Microsoft 365, Entra ID, Intune og Defender.
  • Microsoft vottanir (kostur):
    • Administrator Expert (MS-102)
    • Endpoint Administrator (MD-102).
    • Information Security (SC-401)
    • Identity and Access Administrator (SC-300).
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi þjónustulund.
  • Geta til að vinna í hóp og miðla upplýsingum á skýran hátt á íslensku og ensku.
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Kerfishönnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar