

Hönnuður burðarvirkja
VSB verkfræðistofa óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf hönnuðar burðarvirkja. Hönnuður burðarvirkja starfar á byggingarsviði VSB. Um framtíðarstarf er að ræða og í boði eru spennandi verkefni í frábæru starfsumhverfi.
Framkvæmdastjóri, Lilja G. Karlsdóttir ([email protected]) veitir frekari upplýsingar. Umsókn um starfið með upplýsingum um menntun, hæfni og starfsreynslu óskast skilað á Alfreð.is eigi síðar en 7. júní næstkomandi
Fyllsta trúnaðar er gætt
Hönnun burðarvirkja og gerð séruppdrátta
Gerð greinagerða, verklýsinga, magnskráa sem og kostnaðaráætlana
Önnur tilheyrandi verkefni við undirbúning og eftirfylgni framkvæmda
Ábyrgð á gerð og gæðum hönnunargagna í samræmi við gæðakerfi og stefnu VSB
Samskipti við verkkaupa og samstarfsaðila í hönnunarverkefnum
Verkfræðingur eða tæknifræðingur með sérþekkingu á burðarvirkjahönnun
Reynsla í hönnun burðarvirkja er skilyrði
Löggilding í hönnun burðarvirkja er kostur
Sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni er skilyrði
Góð kunnátta á hönnunarforritum burðarvirkja (SAFE, SAP2000 o.fl.)
Góð kunnátta á teikniforritum (AutoCad og Revit)
Skemmtilegir vinnufélagar
Niðurgreiddur hádegismatur
Sími og símareikningur greiddur af VSB
Sveigjanlegur vinnutími
Íþróttastyrkur
Samgöngustyrkur
Enska
Íslenska










