VSB Verkfræðistofa
VSB Verkfræðistofa

Sviðstjóri byggingarsviðs

VSB verkfræðistofa leitar að öflugum leiðtoga til að stýra byggingarsviði fyrirtækisins.

Við leitum að einstaklingi með ríka forystu og samskiptahæfileika og getu til að efla liðsheild. Aðili sem kemur fram af auðmýkt og gefur sér tíma fyrir sitt starfsfólk og viðskiptavini.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem tækifæri gefst til að móta starfsemi sviðsins og hafa áhrif á þróun þess. Sviðstjóri byggingarsviðs leiðir teymi átta starfsmanna. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri VSB.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg stjórnun sviðsins og að deila út verkefnum í samstarfi við fagstjóra.
  • Ábyrgð á mönnun verkefna ásamt gerð áætlana og eftirfylgni í samráði við verkefnastjóra og fagstjóra.
  • Verkefnastjórnun.
  • Að stuðla að faglegri þróun og tryggja persónulega þróun starfsfólks á sviðinu.
  • Samskipti við viðskiptavini.
  • Tilboðsgerð í samvinnu við framkvæmdastjóra.
  • Þátttaka í hönnunarverkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði verk- eða tæknifræði.
  • Starfsreynsla á tengdu starfssviði.
  • Farsæl reynsla sem stjórnandi.
  • Árangursrík reynsla af verkefnastjórnun.
  • Reynsla af hönnun er kostur.
  • Góð færni í að skapa öfluga liðsheild.
  • Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta, þekking á norðurlandamáli kostur.

Á byggingarsviði starfar átta manna samhentur hópur að eftirfarandi verkefnum: Hönnun burðarvirkja, hönnun lagna- og loftræsikerfa, hönnun rafkerfa og lýsingar, verkefnastjórnun, gerð útboðsgagna, gerð kostnaðaráætlana, önnur fagleg ráðgjöf.

Hjá VSB starfa tæplega 40 sérfræðingar og fyrirtækið hefur starfað í tæp 40 ár.. Starfsemi VSB skiptist í fjögur svið: Byggingasvið, Byggðatæknisvið, Framkvæmdasvið og Samgöngur- og skipulagssvið. Vinnustaðurinn leggur áherslu á gagnkvæman sveigjanleika og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. VSB hefur vottað gæðastjórnkerfi ISO 9001 og vottað umhverfisstjórnunarkerfi skv. ISO 14001.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júní næstkomandi.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]).

Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bæjarhraun 20, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar