
First Water
First Water starfrækir seiðaeldisstöð við Hveragerði og áframeldisstöð við Þorlákshöfn. Verkefnið nýtur afburða aðstæðna í Ölfusi þar sem gott aðgengi er að landrými, umhverfisvænni orku og ekki síst tæru ferskvatni og sjóvatni við kjörhitastig fyrir laxeldi. Uppbyggingin miðar að sjálfbærri og umhverfisvænni framleiðslu þar sem lax er alinn við kjöraðstæður í hreinum sjó sem dælt er upp í gegnum hraunlög á svæðinu og öll orka kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum vatns- og gufuaflsvirkjana Landsvirkjunar.
Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því mikla áherslu á að upp öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.
First Water kappkostar að bjóða upp á gott starfsumhverfi á skemmtilegum og samheldnum vinnustað

Verk- eða tæknifræðingur
Við leitum að verk- eða tæknifræðingi í framtíðarstarf á tæknisviði félagsins.
Starfsstöð er í höfuðstöðvum félagsins í Urðarhvarfi í Kópavogi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun á vélbúnaði og lausnum fyrir landeldiskerfi
- Val á búnaði og íhlutum
- Rýni á hönnunargögnum
- Skipulagning prófana og gangsetningar á vélbúnaði
- Aðstoð við bilanagreiningu og tæknileg úrlausnarefni
- Innkaupagögn og innkaup á tæknibúnaði
- Þátttaka í umbótaverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Verk- eða tæknifræðingur
- Reynsla af hönnun vélbúnaðar og tæknilausna
- Reynsla af þríviddarhönnun í Autodesk Inventor eða sambærilegum
- Grunn þekking á FEM hermun
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi og umbótahugsun
Nánari upplýsingar veitir Sigurður M. Benediktsson, forstöðumaður verkfræðideildar, [email protected]
Umsóknafrestur er til og með 21. júní.
First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í reglumálum og regluvörslu / Regulatory Affairs & Compliance Specialist
Nicopods ehf

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu
Landsvirkjun

Viltu starfa sem sérfræðingur í skýjalausnum hjá Wise?
Wise lausnir ehf.

Framendaforritari
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sales Engineer
JBT Marel

Senior Development Engineer
DTE

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Sérfræðingur í veituhönnun
COWI

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær

Hönnuður burðarvirkja
VSB verkfræðistofa

Ráðgjafi í áhætturáðgjöf Deloitte
Deloitte

Sviðsstjóri byggingarsviðs
VSB Verkfræðistofa