
Wise lausnir ehf.
Wise er alhliða upplýsingatæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, ráðgjöf og innleiðingu á breiðu úrvali viðskipta- og rekstrarlausna sem hjálpa fyrirtækjum að skara fram úr, mæta áskorunum og grípa ný tækifæri.
Lausnaframboð okkar samanstendur af hýsingar- og rekstrarþjónustu, öryggislausnum og heildstæðum viðskiptalausnum fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög.
Hjá Wise starfa tæplega 200 sérfræðingar í Reykjavík, á Akureyri og í Litháen.
Við erum fjölbreyttur hópur fólks sem eigum það sameiginlegt að brenna fyrir upplýsingatækni, nýsköpun og árangri viðskiptavina.
Wise er fjölskylduvænn, lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Við leggjum áherslu á hvetjandi starfsumhverfi með markvissri fræðslu og þjálfun, að starfsfólki líði vel í vinnunni og að starfsandi sé eins og best verður á kosið. Jafnframt er boðið upp á samgöngu- og heilsustyrk til starfsmanna.
Fyrirtækið býður upp á samkeppnishæf laun og hlaut jafnlaunavottun 2021 og viðurkenningu FKA Jafnvægisvogarinnar 2022.

Viltu starfa sem kerfisstjóri hjá Wise?
Wise leitar að Microsoft kerfistjóra (System Administrator) í öflugt teymi
Ert þú kraftmikill og sjálfstæður einstaklingur sem átt auðvelt með að vinna í hóp og hefur góða innsýn inn í kerfisrekstur og þarfir viðskiptavina?
Wise leitar að öflugum sérfræðingi með ástríðu fyrir upplýsingatækni og kerfisrekstri til að starfa með okkur að áframhaldandi uppbyggingu á upplýsingakerfa viðskiptavina okkar.
Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna með nýjustu tækni í Microsoft vistkerfinu, veita faglega ráðgjöf og tryggja að rekstur og þjónusta sé ávallt í hæsta gæðaflokki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á Microsoft Windows netþjónum (Active Directory, Entra ID, Intune, Defender) hjá viðskiptavinum og Wise.
- Virk þátttaka í hönnun og þróun nýrra lausna til að tryggja að Wise bjóði ávallt það nýjasta og besta í Microsoft lausnum.
- Lausnamiðuð ráðgjöf og samskipti við viðskiptavini.
- Umsjón með eftirfylgni verkefna þar sem fagmennska og lipurð í lausnaleit er höfð að leiðarljósi.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
3+ ára reynsla af UT rekstri með áherslu á Microsoft lausnir.
- Góð þekking á Windows netþjónum og AD umhverfa, ásamt Entra ID, Intune og Defender.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi þjónustulund.
- Geta til að vinna í hóp og miðla upplýsingum á skýran hátt á íslensku og ensku.
- Microsoft vottanir (kostur):
- Windows Server Hybrid Administrator Associate (AZ-802)
- Endpoint Administrator (MD-102)
- Information Security (SC-401)
- Identity and Access Administrator (SC-300)
- Microsoft 365 Administrator Expert (MS-102)
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AzureKerfishönnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Viltu starfa sem kerfisstjóri hjá Wise á Akureyri?
Wise lausnir ehf.

Tæknimaður
Ístak hf

Sérhæfður tæknimaður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli
Landhelgisgæsla Íslands

Verkefnastjóri/sérfræðingur
Vegagerðin

Kerfisstjóri / IT Administrator
Auðkenni ehf.

BIM-stjóri Nýs Landspítala ohf.
Nýr Landspítali ohf.

Sérfræðingur í UT teymi
Orkan

Viltu starfa sem sérfræðingur í skýjalausnum hjá Wise?
Wise lausnir ehf.

Tæknimaður í Framlínuþjónustu
OK

Kerfisstjóri
Nói Síríus

Tæknistarf í hljóð- og myndlausnum
Ofar

Verk- eða tæknifræðingur
First Water