
Sérhæfður tæknimaður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli
Hefur þú brennandi áhuga á rafeinda- og hátæknibúnaði og ert að leita að nýrri áskorun?
Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða áhugasama og trausta liðsfélaga í samhenta deild sérfræðinga sem bera ábyrgð á rekstri, viðhaldi, viðgerðum, uppsetningu og þróun á tækni- og kerfisbúnaði Atlantshafsbandalagsins hér á landi.
Búnaðurinn og kerfin samanstanda m.a. af stjórnstöðvar-, ratsjár-, fjarskipta-, samskipta- og kerfisbúnaði sem staðsettur er í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og á ratsjár- og fjarskiptastöðvum Atlantshafsbandalagsins á Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi. Starfið krefst m.a. skipulagðra og tilfallandi ferða út á stöðvarnar á öllum tímum ársins.
Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar annast framkvæmd rekstrartengdra varnarverkefna. Unnið er samkvæmt kröfum, stöðlum, reglum og leiðbeiningum Atlantshafsbandalagsins og fær viðkomandi viðeigandi þjálfun í þeim verkefnum, hér á landi og eftir því sem við á erlendis, hjá stofnunum Atlantshafsbandalagsins og aðildaþjóðunum.
Starfsstöð er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og er um að ræða fullt starf í dagvinnu ásamt bakvöktum og tilfallandi vinnuskyldu utan dagvinnutíma.
Helstu verkefni:
- Rekstur, viðhald, bilanagreining og viðgerðir á ratsjár-, fjarskipta- og kerfisbúnaði Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðum
- Viðgerðir íhluta
- Verkskráning, skýrslugerð og uppfærsla teikninga
- Þátttaka í þjálfunarverkefnum
- Stuðningur við erlendan liðsafla á öryggissvæðum
- Önnur tengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi, s.s. rafeindavirkjun. Framhaldsnám í tæknifræði er kostur
- Góð þekking á virkni rafeindabúnaðar
- Góð tæknileg þekking og færni í bilanagreiningu
- Þekking og/eða reynsla af viðhaldi fjarskiptabúnaðar er kostur
- Þekking og/eða reynsla af viðhaldi véla og tækja er kostur
- Grunnþekking á kerfis- og hugbúnaði ásamt virkni netkerfa er kostur
- Þekking á Linux er kostur
- Góð samskiptahæfni, fagmennska og frumkvæði
- Öguð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi við krefjandi aðstæður
- Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi
- Ökuréttindi
- Góð enskukunnátta
- Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Um Landhelgisgæslu Íslands:
Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi - Þjónusta – Fagmennska.
Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar veitir Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.
Enska
Íslenska










