

Sérfræðingur í kerfisgreiningum
Viltu hafa áhrif á framtíð raforkukerfis Íslands?
Landsnet leitar að öflugum einstaklingi til að taka þátt í þróun og mótun framtíðar flutningskerfis raforku á Íslandi.
Þú verður hluti af teymi sérfræðinga í Kerfisþróun sem vinnur að kerfisgreiningum og undirbúningi framtíðartenginga nýrra virkjana og notenda við flutningskerfið. Teymið starfar þvert á fyrirtækið í nánu samstarfi við önnur svið Landsnets og gegnir lykilhlutverki í þróun innviða sem styðja við orkuskipti og aukna raforkunotkun samfélagsins.
Framundan eru spennandi áskoranir tengdar tækninýjungum, nýjum orkugjöfum og breyttum kröfum til raforkukerfisins. Við leggjum áherslu á framsækna uppbyggingu flutningskerfisins með það að markmiði að tengja betur saman raforkuvinnslu og notkun, hámarka nýtingu kerfisins og stuðla að hagkvæmri þróun til framtíðar.
Helstu verkefni
- Kerfisgreiningar og hermun á raforkukerfinu.
- Greiningar tengdar nýjum orkugjöfum, tækninýjungum og framtíðarþróun kerfisins.
- Þátttaka í vinnslu kerfisáætlunar og öðrum útgáfum deildarinnar.
- Valkostagreiningar fyrir uppbyggingu flutningskerfisins.
- Þróun kerfislíkana og annarra greiningarverkfæra.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur menntun í raforkuverkfræði eða aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
- Hefur áhuga á raforkukerfum og tæknilegri þróun þeirra.
- Býr yfir greiningarhæfni og lausnamiðaðri hugsun.
- Hefur góða samskiptahæfni og kann vel við sig í þverfaglegu samstarfi.
- Þekking á kerfisgreiningum og hugbúnaði á borð við PowerFactory er kostur.
- Samstarf við fjölbreyttan hóp sérfræðinga sem vinna að framtíð raforkukerfisins.
- Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi sem styður við þróun og nýsköpun.
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
Íslenska
Enska










