
Inter ehf
Inter ehf er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1993. Markmið Inter ehf er að bæta lífsgæði með því að bjóða upp á heildarlausnir fyrir allar heilbrigðisstofnanir. Þjónusta hefur alla tíð verði aðalsmerki fyrirtækisins ásamt þvi að veita lausnir fyrir heilbrigðisstofnanir. Hjá Inter ehf starfar samhentur hópur fagfólks á heilbrigðissviði sem vinnur í sameiningu að því að finna bestu lausnirnar fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Inter ehf flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði að Vatnagörðum 12, 104 Reykjavík í maí 2022..

Tæknimaður / Viðgerðarmaður óskast til Inter ehf.
Inter ehf. leitar að drífandi og handlögnum einstakling í teymi okkar. Við þjónustum hátæknibúnað fyrir heilbrigðisgeirann og vantar liðsauka sem er tilbúinn að takast á við krefjandi og spennandi verkefni, jafnt á verkstæði sem og úti hjá viðskiptavinum.
Starfssvið:
- Alhliða þjónusta, viðhald og viðgerðir á lækningatækjum og tengdum búnaði.
- Uppsetningar á nýjum búnaði á heilbrigðisstofnunum og starfsstöðvum um land allt.
- Greining og viðgerðir á vélbúnaði
- Samskipti við erlenda birgja vegna tæknimála.
- Önnur tilfallandi verkefni á verkstæði og á vettvangi.
Hverju erum við að leita að?
Við leitum að tæknisinnuðum einstaklingi sem er á góðum stað í lífinu og vill vaxa í starfi. Viðkomandi þarf að hafa:
- Ríka tæknikunnáttu: Þú þarft að vera „laginn í höndunum“, og geta unnið eftir kröfum framleiðenda.
- Góða tölvukunnáttu: Kerfin okkar eru nútímaleg og þú þarft að vera lipur á tölvu við uppsetningar og bilanagreiningar.
- Lausnarmiðað hugarfar: Þú sérð möguleika þar sem aðrir sjá vandamál.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum: Þú ert sjálfbjarga og getur fylgt verkefnum eftir frá upphafi til enda.
- Góða enskukunnáttu: Þar sem mikið af leiðbeiningum og samskiptum við birgja er á ensku, þarf hún að vera til staðar.
- Prúðmennsku: Þú kemur vel fyrir og átt auðvelt með að eiga góð samskipti við viðskiptavini okkar.
Hvað bjóðum við?
- Spennandi og fjölbreytt starfsumhverfi þar sem engir tveir dagar eru eins.
- Námskeið erlendis á þau tæki sem við þjónustum.
- Tækifæri til að læra á flókinn og áhugaverðan búnað.
- Gott og afslappað starfsumhverfi.
Auglýsing birt29. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vatnagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Reykjavík: Bifvélavirki/vélavirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

SPENNANDI STARF FYRIR RAFVIRKJA HJÁ TG raf
TG raf ehf.

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku-Reykjavík
MAX1 | VÉLALAND

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku - Hafnarfjörður
MAX1 | VÉLALAND

Sérfræðingur í kerfisgreiningum
Landsnet hf.

Viltu byggja upp framtíð vindorku á Íslandi?
Landsvirkjun

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum (Keflavík)
Ofar

Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek

Car Cleaning
Cozy Campers Iceland

Rafvirki með sérþekkingu á brunakerfum
TG raf ehf.

Rafvirki - Vélvirki - Vélstjóri - Vélfræðingur
Púlsinn ehf.

Rafvélavirki / Rafeindarvirki / Bifvélavirki / Viðgerðamaður, framtíðarstarf
Bílaraf ehf