Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Sérfræðingur í hússtjórnarkerfum

Öryggismiðstöðin leitar að tæknifræðingi, rafiðnfræðingi eða einstakling með góða reynslu á sviði hússtjórnarkerfa.

Í boði er fjölbreytt starf við hönnun, uppsetningu og viðhald á hússtjórnarkerfum.

Starfið tilheyrir sviði Tækni og hönnunar en þar fer fram víðtæk þjónusta á öryggis- og velferðartæknilausnum.

Um er að ræða framtíðarstarf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað með einstökum starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hönnun og uppsetning á hússtjórnakerfum
  • Samskipti við viðskiptavini og birgja
  • Þátttaka í teymisvinnu innan tæknisviðs
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Rafmagnstæknifræðingur BSc, rafiðnfræðingur eða sambærileg reynsla
  • Reynsla af uppsetningu hússtjórnarkerfa er krafa
  • Reynsla af loftræstikerfum og iðnstýringum er kostur
  • Þekking og reynsla af forritun er kostur
  • Hæfni til að vinna í teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og rík þjónustulund
  • Stundvísi og vinnugleði er vel metið
  • Góð færni í íslensku og ensku nauðsynleg
  • Góð tölvukunnátta
  • Gild ökuréttindi

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Ólafsson, tækni- og verkefnastjóri, í síma 570 2400 eða í gegnum netfangið [email protected].

Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar