
BSI á Íslandi ehf.
Um BSI á Íslandi
Fyrirtækið sérhæfir sig í þjónustu við atvinnulífið. Starfsemi fyrirtækisins einskorðast við úttektir, samræmismat, eftirlit, skoðanir, þjálfun, vottanir og kvörðunarþjónustu.
Fyrirtækið hóf starfsemi á Íslandi árið 2004 og er skrifstofa okkar að Skútuvogi 1d, 104 Reykjavík ásamt því að skoðunarmenn okkar eru með starfsstöðvar á 5 stöðum á landinu.

Skoðunarmaður á rafmagnssviði
BSI á Íslandi óskar eftir því að ráða agaðan og metnaðarfullan einstakling í starf skoðunarmanns á rafmagnssviði. Hjá okkur er gott vinnumhverfi og starfsfólkið býr yfir ólíkri þekkingu, reynslu og hæfileikum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að skoða virki með málspennu yfir 1000 V riðspennu eða 1500 V jafnspennu
- Að skoða virki með málspennu til/með 1000 V riðspennu eða 1500 V jafnspennu
- Að skoða öryggisstjórnunarkerfi rafveitna og framkvæmd öryggisstjórnunar
- Að skoða öryggisstjórnunarkerfi rafverktaka og framkvæmd öryggisstjórnunar
- Skoðun á aðstöðu og búnaði rafverktaka
- Að skoða rafföng á markaði
- Prófanir á tæknibúnaði
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds verkfræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
- hafa lokið fullnaðarprófi frá rafmagnsdeild viðurkennds tæknifræðiháskóla (sterkstraumssviði) og hafa að auki tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
- hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssviði) frá Háskólanum í Reykjavík (áður Tækniháskóli Íslands og Tækniskóli Íslands) eða öðrum viðurkenndum skóla og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja, eða
- hafa sveinsbréf í rafvirkjun og hafa lokið prófi í meistaranámi í rafvirkjun (sterkstraumssviði) frá viðurkenndum skóla eða hafa jafngilda menntun að mati mennta¬mála-ráðuneytisins og hafa að auki tveggja ára reynslu að loknu sveinsprófi við störf sem lúta að hönnun og/eða setningu lágspennuvirkja
Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 1d, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tölvukunnáttaAlmenn tæknikunnáttaHreint sakavottorðMetnaðurRafvirkjunSjálfstæð vinnubrögðSkýrslurSveinspróf
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

SPENNANDI STARF FYRIR RAFVIRKJA HJÁ TG raf
TG raf ehf.

Vélvirki - Vélfræðingur - Vélstjóri
Rúko hf

Sérfræðingur í kerfisgreiningum
Landsnet hf.

Viltu byggja upp framtíð vindorku á Íslandi?
Landsvirkjun

Innviðir framtíðarinnar - Ofar leitar að sérfræðingum í gagnaverum (Keflavík)
Ofar

Rafvirki / Rafeindavirki til starfa í Tæknideild
Nortek

Rafvirki með sérþekkingu á brunakerfum
TG raf ehf.

Rafvirki - Vélvirki - Vélstjóri - Vélfræðingur
Púlsinn ehf.

Rafvélavirki / Rafeindarvirki / Bifvélavirki / Viðgerðamaður, framtíðarstarf
Bílaraf ehf

Rafvirkjar, vélvirkjar og vélstjórar / Electricians, Mechanics, and Marine Engineers
Alcoa Fjarðaál

Rekstrar- og viðhaldsstjóri (Maintenance Manager)
Borealis Data Center

Sérfræðingur í hönnun rafkerfa
EFLA hf