

Viðhalds- og þjónustudeild HHÍ auglýsir sumarstarf
Happdrætti Háskóla Íslands leitar að skipulögðum, jákvæðum og laghentum aðila í viðhalds- og þjónustudeild á verkstæði HHÍ. Starfið er fjölbreytt og þarf viðkomandi að geta tileinkað sér mismunandi tækni og aðferðir sem henta hverju sinni.
Viðhalds- og þjónustudeild HHÍ sér um viðhald á tækjabúnaði HHÍ s.s. sjálfsölum og spilakössum. Einnig koma upp hin ýmsu tilfallandi verkefni sem þarf að leysa með útsjónarsemi og jákvæðni að leiðarljósi.
Verkstæði og þjónustudeild HHÍ er staðsett á Dvergshöfða 2 ásamt skrifstofu HHÍ. Þjónustusvæði HHÍ nær frá Höfuðborgarsvæðinu, til Suðurnesja og Akureyrar.
Vinnutími 09-17 alla virka daga.
Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera með bílpróf.
Hreint sakavottorð skilyrði.
- Undirbúa vélar sem teknar hafa verið úr rekstri fyrir endurvinnslu
- Viðhald á vélum Gullnámunar og sjálfssölum Happaþrennu
- Símsvörun bilanasíma
- Svörun tölvupósta
- Skýrslugerð og skrásetning varahluta
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Góð tæknikunnátta og færni til að sinna fjölbreyttum verkefnum.
Góð almenn hæfni í tölvum s.s. notkun á Excel.
Enska
Íslenska










