
Myllan-Ora
Myllan-Ora ehf á og rekur matvælaframleiðslu undir merkjum Myllunnar, Kexsmiðjunnar, Frón, Ora og Gunnars. Starfsemi Myllunnar, Kexsmiðjunnar og Frón fer fram á Blikastaðavegi 2 í Reykjavík en starfsemi Ora og Gunnars er í Vesturvör 12 í Kópavogi.

Sumarstarf vélvirkja í tæknideild
Myllan-Ora leitar að vélvirkja eða einstakling með sambærilega þekkingu til starfa í öflugt teymi tæknideildar fyrirtækisins í sumar.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf en tæknideild sinnir m.a. viðhaldi á framleiðsluvélum og búnaði fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og viðgerðir á framleiðsluvélum og búnaði
- Bilanagreiningar
- Almenn viðgerðarvinna
- Samskipti við framleiðsludeildir
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í vélvirkjun eða sambærileg menntun er æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Almenn tölvuþekking
Fríðindi í starfi
- Í Myllunni er frábært mötuneyti þar sem eldað er á staðnum alla daga og er matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk.
- Starfsfólk getur sótt sér nýbakað brauð daglega til þess að taka með heim og oft aðrar vörur.
- Frábært samstarfsfólk og öflugt starfsmannafélag.
Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Blikastaðavegur 2-8 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérhæfður tæknimaður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli
Landhelgisgæsla Íslands

Viðhalds- og þjónustudeild HHÍ auglýsir sumarstarf
Happdrætti Háskóla Íslands

Þjónustumaður í kæliþjónustu
KAPP ehf

Vörubílstjóri - krókheysisbíll
Stéttafélagið ehf.

Vélamaður á hjólagröfu (mobile excavator)
Stéttafélagið ehf.

Starfsmenn í sjóeldisdeild
Arctic Fish

Vélstjóri eða vélvirki í Þjónustuverkefnir við kæli- og frystikerfi á Akureyri og nágrenni
Frost

Vélstjóri, vélvirki í fjölbreytt þjónustustarf
Frost

Gröfumaður/Vélamaður
Jarðtækni

Sölu- og verkefnastjóri Loftveitulausna
Klettur - sala og þjónusta ehf

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli
Matfugl

Rafvirki eða vélvirki á vélaverkstæði Eimskips á Mjóeyrarhöfn
Eimskip