
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Sölu- og verkefnastjóri Loftveitulausna
Gakktu til liðs við kraftmikinn hóp
Við leitum eftir að ráða metnaðarfullan og drífandi sölu- og verkefnastjóra Ingersol Rand og Champion loftveitulausna. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í góðu starfsumhverfi í Klettagörðum 8-10 Reykjavík
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innkaup og sala á loftpressum og tengdum búnaði
- Samskipti við birgja
- Samskipti við viðskiptavini, öflun nýrra viðskiptavina og viðhald tengsla
- Tilboðsgerð og ráðgjöf
- Áætlanagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur s.b. Vélvirki, vélfræðingur eða rafvirki.
- Reynsla af viðskiptastjórnun, sölu og/eða ráðgjöf
- Góðir samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt viðmót.
- Þekking og reynsla af samningatækni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Góð kunnátta og færni í Excel og DAX er kostur.
- Góð íslensku og enskukunnátta í bæði rituðu og töluðu máli
- Hæfni til að vinna með öðrum og að vera góður liðsmaður innan heildarinnar.
- Metnaður til að ná afburðarárangri í starfi.
Fríðindi í starfi
- Afsláttur af þjónustu og vörum fyrirtækisins
- Íþróttastyrkur
- Mötuneyti á staðnu
- Sterkt og virkt starfsmannafélag
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðSamningagerðSamviskusemiSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Rafvirki óskast til starfa hjá Matfugli
Matfugl

Sumarstarf Standsetningar
BRP - Ellingsen

Sumarstarf - Starfsmaður í vöruhúsi í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf

Bílstjórar og vélamenn
Suðurverk hf

Dag- og kvöldvaktir hjá traustu fyrirtæki
Tempra ehf

Við leitum að hörðum nöglum
Grafa og Grjót ehf

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Óskum eftir starfsmanni í kjötvinnslu
Esja Gæðafæði

Meiraprófsbílstjóri
Garðlist ehf

Viðgerðarmaður á verkstæði
Garðlist ehf

Vörubílstjóri - krókheysisbíll
Stéttafélagið ehf.

Vélamaður á hjólagröfu (mobile excavator)
Stéttafélagið ehf.