BRP - Ellingsen
BRP - Ellingsen
BRP - Ellingsen

Sumarstarf Standsetningar

BRP-Ellingsen leitar að drífandi og skemmtilegum einstakling sem vill ganga til liðs við öflugt teymi á þjónustuverkstæði umboðsins að Vínlandsleið 1 í Grafarholti.

Starfið felur í sér standsetningar og breytingar á ýmsum tækjum sem BRP-Ellingsen selur, svo sem buggý-bílum, vélsleðum, fjórhjólum og mótorhjólum.

Um er að ræða sumarstarf og getur viðkomandi hafið störf strax. Möguleiki er á áframhaldandi hlutastarfi í vetur.

Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi einhverja reynslu af léttum viðgerðum og búi yfir grundvallar skilning á vélknúnum ökutækjum.


Vinnutími er 08:00 til 17:00 alla virka daga.

BRP-Ellingsen er dreifingaraðili BRP, Sur-Ron og Stark á Íslandi. BRP framleiðir vélsleða, fjórhjól, sæþotur, buggybíla og fleira undir merkjum Lynx, Ski-Doo, Can-Am og Sea-Doo. Starfsemi félagsins felst í sölu og þjónustu við öll merki BRP ásamt öðrum vörum, auka- og fylgihlutum fyrir vélknúna útivist.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Standsetning á vélsleðum, buggý bílum, sæþotum, mótorhjólum og fjórhjólum.
  • Léttar viðgerðir og breytingar á fyrrnefndum tækjum.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðgerðum vélknúinna tækja.
  • Gott tölvulæsi.
  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð.
  • Góð tök á íslensku og ensku skilyrði. 
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur29. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar