JBT Marel
JBT Marel
JBT Marel

Framleiðslusérfræðingur (Manufacturing Engineer)

JBT Marel leitar að drífandi og lausnamiðuðum framleiðslusérfræðingi til að ganga til liðs við framleiðsluþróunarteymi okkar á Íslandi.

Í þessu lykilhlutverki munt þú leiða aðkomu framleiðslunnar að innleiðingu nýrra vara og vera helsti tengiliður milli vöruþróunar og framleiðslu. Samhliða því tekur þú virkan þátt í þróun og umbótum á framleiðsluferlum, gæðamálum og gagnagrunni framleiðslunnar.

Þú gegnir mikilvægu hlutverki í að tryggja að nýjar og núverandi vörur séu hagkvæmar í framleiðslu og uppfylli kröfur um gæði og skilvirkni.

Þetta starf hentar einstaklingi sem hefur áhuga á samspili hönnunar og framleiðslu, nýtur þess að vinna þvert á teymi og vill hafa raunveruleg áhrif á framleiðsluferla.


Helstu verkefni

  • Leiða og samræma aðkomu framleiðslu að vöruþróunarferli (NPI – New Product Introduction)
  • Vera lykiltengiliður milli framleiðslu og vöruþróunarteyma
  • Styðja við innleiðingu nýrra vara og tryggja hnökralausa yfirfærslu í framleiðslu
  • Þróa, bæta og staðla framleiðsluferla með áherslu á öryggi, gæði og skilvirkni
  • Taka þátt í greiningu gæðamála, rótargreiningum og innleiðingu úrbóta
  • Vinna að stöðugum umbótum (continuous improvement) í samstarfi við þverfagleg teymi
  • Viðhalda framleiðslugögnum (Master Data) í SAP og öðrum kerfum
  • Tryggja gæði og samræmi gagna sem styðja við framleiðslu, kostnað og skipulagningu
  • Taka þátt í fjölbreyttum og tilfallandi verkefnum innan framleiðsluþróunarteymis


Um þig

Þú ert skipulagður og lausnamiðaður einstaklingur sem hefur sterka samskiptahæfni og nýtur þess að vinna í teymisumhverfi. Þú hefur áhuga á að bæta framleiðsluferla og taka virkan þátt í þróun nýrra vara frá fyrstu stigum.


Hæfniskröfur

  • Menntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærilegu
  • Góðum skilningi á framleiðsluferlum og -aðferðum
  • Áhuga á vöruþróunarferlum og innleiðingu nýrra vara
  • Áhuga á gæðamálum og stöðugum umbótum
  • Greiningarhæfni og skipulögðum vinnubrögðum
  • Góðri samskiptahæfni og getu til að vinna þvert á teymi
  • Góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti
  • Kostur er:
    • Reynsla af framleiðsluumhverfi
    • Þekking á CAD kerfum (t.d. SolidWorks)
    • Reynsla af ERP/PLM kerfum
    • Reynsla af rótargreiningaraðferðum


Hvað við bjóðum

  • Krefjandi og áhrifamikið starf í alþjóðlegu tæknifyrirtæki
  • Bein þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra vara
  • Tækifæri til að hafa áhrif á gæði og skilvirkni framleiðslu
  • Sterkt teymisumhverfi og þverfaglegt samstarf
  • Tækifæri á starfsþróun
  • Frábært mötuneyti með morgunmat og heitum mat í hádeginu
  • Fjölskylduvænn vinnutími
  • Íþróttaaðstaða, íþróttastyrkur og hjólageymsla
  • Samgöngustyrkur
  • Sálfræðistyrkur
  • Fæðingarorlofsstyrkur
  • Árlegt heilsufarsmat
  • Virkt starfsmannafélag


Hefur þú áhuga?

Langar þig að verða hluti af teyminu okkar? Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um stöðuna!

Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2026 og sótt er um starfið í gegnum heimasíðu okkar, JBT Marel.

Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar