

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar
Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs óskar eftir verkefnastjóra fjármála og rekstrar. Um er að ræða ótímabundið starf. Starfshlutfall 100% og unnið er í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Skrifstofa er stoðdeild á fræðslu- og lýðheilsusviði. Þar er yfirumsjón og eftirlit með rekstrareiningum sviðsins á sviði skólamála, skólaþjónustu, tómstunda-, forvarna- og íþróttastarfs, auk þess sem veitt er ráðgjöf á þeim sviðum.
Markmið starfs verkefnastjóra fjármála og rekstrar er að styðja stjórnendur sviðsins í rekstri, einkum á sviði fjármála, með greiningu, eftirfylgni og gerð fjárhagsáætlana. Verkefnastjóri rekstrarmála ber ábyrgð á yfirumsjón með rekstri og áætlanagerð fyrir stofnanir sviðsins.
- Umsjón með fjárhagsáætlun og rekstri allra eininga sviðsins í samvinnu við stjórnendur, þar á meðal gerð greinargerðar með fjárhagsáætlun.
- Umsjón með gerð launaáætlunar í samstarfi við stjórnendur og stofnanir sviðsins, ásamt millifærslum vegna samstarfsverkefna.
- Samþykkt reikninga sem ekki falla beint undir einstaka stjórnendur, svo sem vegna sameiginlegs kostnaðar (t.d. skólaaksturs, mötuneyta og annarra sameiginlegra verkefna), og reikninga sem skiptast milli aðila.
- Ráðgjöf og eftirlit með rekstri skólamötuneyta.
- Gerð rekstrargreininga og skýrslna fyrir stofnanir og einstök verkefni.
- Þátttaka í innleiðingu og þróun verkferla, verklags og kerfa.
- Umsjón með innheimtu vegna seldrar þjónustu, svo sem námskeiða, kennslu, samninga og þjónustu við önnur sveitarfélög.
- Samantekt tölulegra upplýsinga um rekstur og áætlanir, m.a. rekstraryfirlit fjárhags- og starfsáætlana.
- Umsjón með úthlutun stoðþjónustu í leik- og grunnskólum í samráði við forstöðumann skólaþjónustu.
- Er tengiliður við fjársýslusvið sveitarfélagsins vegna heildarreksturs eininga innan sviðsins, í samstarfi við forstöðumann skrifstofu.
- Hefur umsjón með útboðum á sviði fræðslumála (t.d. ræstingar, skólaakstur, mötuneyti og námsgögn), kemur til framkvæmdar og veitir eftirfylgni.
- Yfirferð vinnuskýrslna grunnskólakennara í upphafi skólaárs í samráði við skólastjórnendur.
- Umsjón með samningum við verktaka og uppgjöri vegna utanskólavalgreina.
- Umsjón með samstarfi grunnskóla og íþróttafélaga vegna útleigu húsnæðis.
- Háskólamenntun (BSc/BA eða sambærilegt) sem nýtist í starfi s.s. á sviði fjármála, viðskipta, hagfræði eða verkfræði.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun.
- Reynsla af rekstrartengdum verkefnum.
- Þekking á málaflokkum sviðsins er æskileg.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu kostur.
- Krafist er góðrar tölvufærni, mikillar hæfni í notkun Excel og bókhalds- og skjalakerfum.
- Færni í framsetningu gagna og annara upplýsinga í skýrsluformi.
- Reynsla og þekking á hreinsun og úrvinnslu gagna og tengingu gagnasetta er kostur.
- Þekking á gagnagreiningatólum, t.d. PowerBI, er kostur.
- Geta og færni til að öðlast nýja þekkingu og tileinka sér notkun nýrra forrita og vinnubragða.
- Góð greiningarhæfni og talnalæsi.
- Geta til að vinna sjálfstætt og markvist að eigin verkefnum.
- Samskiptafærni, sveigjanleiki og víðsýni.
- Metnaður til að ná árangri í starfi og innleiða nýjungar.
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Íslenska










