
Veitur
Veitur eru framsækið þjónustufyrirtæki sem tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og þjónustar ríflega 70% landsmanna. Við setjum viðskiptavininn í fyrsta sæti og erum stöðugt að bæta okkur og finna leiðir til þess að þjónusta viðskiptavini okkar enn betur.
Til að vita meira um hvernig er að starfa hjá Veitum er tilvalið að heimsækja heimasíðuna okkar, www.veitur.is/vinnustadurinn.

Lykilsérfræðingur í leyfis- og skipulagsmálum
Vilt þú hafa áhrif á framgang mikilvægra innviðaverkefna?
Veitur leita að öflugum sérfræðingi til að taka að sér lykilhlutverk í skipulags- og leyfismálum félagsins. Hlutverkið snýst um að tryggja rými fyrir lagnaleiðir og veitumannvirki á skipulagsstigi, leiða leyfismál og vera rödd Veitna gagnvart sveitarfélögum og leyfisveitendum. Um er að ræða nýtt starf þar sem viðkomandi heldur utan um leyfisferli framkvæmdaverkefna og styður við undirbúning þeirra í samstarfi við viðskiptastjóra, verkefnastjóra og aðra hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sækja um og fylgja eftir leyfum fyrir framkvæmdaverkefni hjá sveitarfélögum, ríki og öðrum leyfisveitendum.
- Tala máli verkefnanna við helstu hagaðila og byggja tengsl við sveitarfélög, lykilhagaðila og leyfisveitendur.
- Halda utan um leyfismál, tímalínur og eftirfylgni frá undirbúningi til niðurstöðu.
- Fylgjast með lögum, reglugerðum og breytingum á málaflokknum og taka þátt í hagsmunagæslu Veitna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði skipulagsfræða, arkitektúrs, verkfræði eða skyldra greina sem nýtist í starfi.
- Haldbær reynsla af því að fara með mál eða verkefni í gegnum stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga.
- Þekking á leyfisferlum framkvæmdaverkefna og reynsla af verkefnastjórnun.
- Góð samskiptahæfni, sannfæringarkraftur og hæfni til að tala fyrir verkefnum og byggja upp sambönd við hagaðila.
- Góð yfirsýn og eftirfylgni yfir lengri tíma, læsi á lög og reglugerðir og gott vald á íslensku og ensku.
Auglýsing birt19. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFrumkvæðiMannleg samskiptiSamningagerðSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skrifstofa Fræðslu- og lýðheilsusviðs: Verkefnastjóri fjármála og rekstrar
Akureyri

Verkefnastjóri garða og gróðurs
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í verðbréfagreiningu
Íslandsbanki

Verkefnastjóri Eignasjóðs
Mosfellsbær

Viltu byggja upp framtíð vindorku á Íslandi?
Landsvirkjun

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs - Vesturbyggð
Vesturbyggð

Lögfræðingur á umferðarsviði
Samgöngustofa

Verkefnastjóri á skrifstofu framkvæmdastjóra
N1

Viltu styðja fólk til árangurs með gervigreind? - Sumarstarf
Veritas

Sérfræðingur í vatnamálum
Hafrannsóknastofnun

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?
Sveitarfélagið Hornafjörður

Deildarstjóri umsjónardeildar á Austursvæði
Vegagerðin