66°North
66°North
66°North

Verkefnastjóri vörugagna hjá 66°Norður

66°Norður leitar að skipulögðum og drífandi verkefnastjóra grunngagna (e. Master Data Coordinator) í rekstrarteymi fyrirtækisins (e. Operations). Um er að ræða nýtt hlutverk sem reynir á ríkt frumkvæði og drifkraft til að byggja upp nýja ferla og skilgreina þarfir gagna þvert á starfsemi fyrirtækisins.

Viðkomandi hefur yfirumsjón með því að grunngögn vara (e. product master data) séu áreiðanleg, rétt og aðgengileg. Starfið felur í sér ábyrgð á samræmingu gagna allt frá hönnun og framleiðslu yfir í flutning vara, markaðsefni og vefverslun.

Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að vinna í alþjóðlegu og metnaðarfullu umhverfi, hafa raunveruleg áhrif á starfsemi fyrirtækisins og leiða áfram þróun stafrænna innviða 66°Norður.

Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs. Að ráðningartímanum loknum getur komið til framlengingar eða áframhaldandi ráðningar, með hliðsjón af framvindu verkefnisins og frammistöðu í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun, uppbygging og innleiðing á nýjum ferlum er varða umsjón og meðhöndlun grunngagna fyrirtækisins. 

  • Greining og skilgreining á gagnaþörfum ólíkra deilda til að tryggja að réttum gagnaflokkum sé safnað á réttum tíma. 

  • Gæðastýring og eftirfylgni þess að öll grunngögn vöru séu tæmandi og rétt við lok hvers tímabils (e. seasonal gates). 

  • Stöðug vöktun á gæðum gagna og úrlausn á vöntun eða misræmi upplýsinga í samstarfi við viðkomandi deildir. 

  • Skipulagning og stýring á samstarfsfundum á milli deilda til að útdeila ábyrgð á gagnasöfnun og tryggja að tímalínum sé fylgt.  

  • Umsjón með innleiðingu á sjálfvirkum kerfum og vöktunartólum til að tilkynna hagsmunaaðilum um breytingar sem hafa áhrif á þeirra verksvið. Hanna og setja upp sjálfvirkar keyrslur með tilkynningum sem tryggja gæði gagna. 

  • Virk miðlun upplýsinga og samstarf þvert á allar deildir svo sem hönnun, framleiðslu, markaðsdeild og vefverslun til að tryggja „eina uppsprettu sannleikans“ (e. single source of truth). 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (t.d. á sviði verkefnastjórnunar eða gagnastýringar).

  • Góð reynsla af SQL og hagnýtri gagnavinnslu er skilyrði. 

  •  Reynsla af ERP- eða PIM-kerfum er mikill kostur. 
  • Frumkvæði, framkvæmdagleði og hæfni til að vinna algerlega sjálfstætt. 

  • Skýr „hands-on“ nálgun með drifkraft til að kafa ofan í gögnin, skilgreina gagnaþarfir og byggja upp ferla frá grunni. 

  • Framúrskarandi skipulagshæfni, nákvæmni í vinnubrögðum og geta til að tileinka sér ný kerfi og svið hratt. 

  • Einstök samskiptahæfni, lagni við að leiða fólk saman og fylgja eftir tímalínum þvert á ólíkar deildir. 

  • Gagnadrifin nálgun á verkefni og ríkur skilningur á mikilvægi gagnagæða fyrir starfsemi fyrirtækisins. 

  • Framúrskarandi íslensku og ensku kunnátta, í ræðu og riti. 

  • Áhugi eða reynsla af tísku og hönnun er kostur. 

Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar