

Viðskiptastjóri/Sérfræðingur í markaðsmálum og greiningu
Hefur þú áhuga á tækifærum í íslenskri ull?
Við hjá Ístex hf. leitum að mögnuðum viðskiptastjóra / sérfræðingi í markaðsmálum og viðskiptagreiningu til að vaxa með okkur með jákvæðni og hugmyndauðgi að leiðarljósi. Verkefnin eru fjölbreytt, þar sem mikið reynir á frumkvæði, mannleg samskipti við aðila frá mismunandi löndum, menningarlæsi og alþjóðlega markaðsetningu í raun- og netheimum.
- Stjórna viðskiptum við ákveðna erlenda viðskiptavini félagsins
- Búa til og uppfæra markaðsefni fyrir Lopi, Lopidraumur.is, Lopidesign.is, LopiHome.is, teppi, Lopiloft, Lopifur og aðrar nýjar vörur
- Vinna með vefsíður (Istex.is, Lopidesign.is, Lopidraumur.is og LopiHome.is) og aðra samfélagsmiðla félagsins
- Keyra markaðsherferðir, fylgjast með, mæla árangur og arðsemi, læra og gera betur
- Gera söluáætlanir, kynna þær fyrir sölu- og framleiðsluteymi og framfylgja
- Styrkja og verja vörumerki
- Styðja við vöruþróun, sækja inn á nýja markaði og glíma við önnur tilfallandi verkefni
Háskólamenntun eða reynsla sem nýtist í starfi, sér í lagi á sviði markaðsfræði, viðskiptafræði og/eða rekstri.
- Þekking og reynsla af markaðs- og sölumálum á alþjóðlegum mörkuðum
- Þekking af birgðakeðjum og bestun á vegferð viðskiptavina
- Hæfni til að vinna með og eiga jákvæð samskipti við ólíka aðila með fjölbreytilega reynslu og þarfir
- Sterk ensku kunnátta er mikilvæg, önnur tungumálakunnátta líkt og norðurlandamál, þýska og franska er líka mikilvægur kostur
- Góð tölvukunnátta og -læsi, m.a. í Shopify, Google Analytics, WordPress, öðrum netumsýslukerfum, Power BI og Excel – hæfni til að vinna með stórar gagnaraðir
- Brennandi áhugi á íslenskri ull
Íslenskur textíliðnaður hf (Ístex hf) er ullarvinnslufyrirtæki sem vinnur að því að skapa sem mest verðmæti úr íslenskri ull. Lögð er sérstök áherslu á þróunarverkefni til að skapa spennandi tækifæri til að vaxa og dafna.
Markmið Ístex er að framleiða hágæða vörur úr íslenskri ull fyrir þá sem kjósa náttúrulegar, sjálfbærar og umhverfisvænar vörur.
Fyrirtækið rekur ullarþvottarstöð á Blönduósi og spuna- og bandverksmiðju í Mosfellsbæ. Ullarvinnsla í Mosfellsbæ hefur staðið samfleytt frá árinu 1896, áður undir nafninu Álafoss. Ístex hf tók við starfseminni árið 1991. Bændur eiga yfir 80% hlut í Ístex.
Ístex kaupir ull beint frá bændum en félagið þvær og meðhöndlar um 98-99% af allri íslenskri ull. Ístex miðar að því að lágmarka umhverfisáhrif sín. Þvegin ull og handprjónaband er vottuð samkvæmt STANDARD 100 frá OEKO-TEX®.
Ístex framleiðir handprjónaband úr íslenskri ull og má þar nefna Léttlopa, Álafosslopa, Fjallalopa, Einband, Jöklalopa og Plötulopa. Ístex gefur út handprjónabækur með fjölbreyttri hönnun. Þá framleiðir Ístex ullarteppi og Lopidraumur sængur úr íslenskri ull. Aðrar nýjar vörulínur eru Lopiloft og Lopifur. Vörur Ístex eru seldar víða um heim, en um 60% af tekjum koma erlendis frá.
Nánari upplýsingar má finna á Istex.is.
Enska
Franska
Þýska
Íslenska










