Málmsteypan
Málmsteypan
Málmsteypan

Tæknilegur söluráðgjafi

Málmsteypan leitar að metnaðarfullum og tæknilega sterkum söluráðgjafa til að taka ábyrgð á uppbyggingu og þróun hitaveituvöruflokks fyrirtækisins. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem unnið er bæði með sölu, tæknilega ráðgjöf og markvissa viðskiptaþróun í nánu samstarfi við viðskiptavini og birgja.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með hitaveituvörum og markviss þróun vöruflokksins
  • Tilboðsgerð, magntaka, yfirferð teikninga og verðútreikningar
  • Samskipti við birgja, innkaup og eftirfylgni með vöruframboði
  • Samskipti, ráðgjöf og heimsóknir til lykilviðskiptavina og annarra hagsmunaaðila
  • Umsjón með pöntunum og afgreiðslu ásamt þjónustu til viðskiptavina
  • Þátttaka í viðskiptaþróun, m.a. með bættu þjónustuferli, þróun vöruframboðs og leit að nýjum lausnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sterkur tæknilegur bakgrunnur sem nýtist í starfi, t.d. verkfræði, tæknifræði eða sambærilegt
  • Góð þekking og skilningur á kerfum, teikningum og tæknilegum lausnum
  • Reynsla af tilboðsgerð, kostnaðarmati eða sambærilegum verkefnum er kostur
  • Frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt að uppbyggingu vöruflokks
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Skipulagshæfni og drifkraftur í verkefnum
Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur2. júlí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Miðhraun 6, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar