
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Sérfræðingur í orkumiðlun
Ertu orkumikill orkumiðlari?
Við hjá Landsvirkjun leitum að öflugum liðsfélaga í teymi orkumiðlunar. Teymið ber ábyrgð á þátttöku fyrirtækisins á skipulögðum raforkumörkuðum ásamt því að greina markaði, þróun þeirra og helstu tækifæri. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á greiningu og orkumálum og vill vinna að spennandi verkefnum í faglegu og hvetjandi starfsumhverfi.
Helstu verkefni:
- Þátttaka á raforkumörkuðum og raforkuviðskipti
- Greining á heildsölumarkaði og tækifærum á mörkuðum
- Móttaka raforkupantana og uppgjör vegna raforkuviðskipta
- Verkefnastýring og eftirfylgni skilgreindra verkefna
Við leitum að einstaklingi sem:
- hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða á tengdum sviðum
- hefur mikla reynslu af greiningarvinnu og framsetningu gagna
- býr yfir drifkrafti, frumkvæði og skipulagi og nýtur þess að hrinda verkum í framkvæmd
- býr að sjálfstæði í störfum og jákvæðni í samskiptum
- hefur áhuga á raforkumörkuðum og þróun þeirra
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.
Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiGreiningarfærniJákvæðniMannleg samskiptiSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur á fjármálasviði
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Tæknilegur söluráðgjafi
Málmsteypan

Verkefnastjóri Byggingarframkvæmda
E. Sigurðsson

Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Landsnet

Sérfræðingur í viðskiptagreiningum
Landsnet

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet

Ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Bókari
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Sérfræðingur
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Verkefnastjóri
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fjarðabyggð