
Norðurstjarnan ehf.
Norðurstjarnan ehf er byggingafyrirtæki í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í utanhússklæðningum og blikksmíði. Fyrirtækið er ungt og í miklum vexti, sinnir bæði framleiðslu og uppsetningu á fjölbreyttum klæðningum fyrir þök og veggi og tekur að sér verkefni af öllum stærðum. Starfsmenn búa yfir áratuga reynslu og fyrirtækið leggur áherslu á vandað handverk, áreiðanleika og notkun gæðaefna sem standast íslenskar veðuraðstæður.
Verkefnastjóri / sölumaður
Viltu taka þátt í uppbyggingu og vexti metnaðarfulls verktakafyrirtækis? Við leitum að öflugum og drífandi sölumanni / verkefnastjóra sem vill axla ábyrgð í fjölbreyttu og spennandi starfi á sviði utanhúsklæðninga. Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling sem hefur metnað til að hafa áhrif, móta verkferla og vera hluti af teymi þar sem hlutirnir gerast hratt. Fyrirtækið er í miklum vexti og við leitum að aðila sem vill ekki bara taka þátt í þeirri vegferð – heldur líka hafa raunveruleg áhrif á hana og þróa starfið með okkur til framtíðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með framvindu verkefna og daglega skipulagningu
- Umsjón með tímaskráningum og undirbúningi launaupplýsinga
- Samskipti við viðskiptavini, verktaka og samstarfsaðila
- Sala á þjónustu og tilboðsgerð
- Innkaup á efni og samskipti við birgja
- Umsjón með pöntunum og skipulag innkaupa fyrir verk
- Útgáfa reikninga og umsjón með verkbókhaldi
- Virk þátttaka í umbótastarfi og þróun verkferla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynslu af verkefnastjórnun eða rekstri er æskileg
- Kostur ef viðkomandi hefur bakgrunn í iðngrein
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sölustarfi og/eða viðskiptatengslum er kostur
- Þekking á verkbókhaldi og tímaskráningarkerfum er mikilvæg
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Melabraut 15, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri í klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild
Landspítali

Efnavara - sölumaður
Kemi ehf.

Vilt þú slást í hópinn? Við leitum af kraftmikilli sölumanneskju í 100% starf.
Mathilda

Sölumaður
Gluggar og Garðhús

Deildarstjóri vefverslunar í Húsasmiðjunni
Húsasmiðjan

Sölufulltrúi véladeild
Fálkinn Ísmar

Sölufulltrúi í verslun
Mi búðin

Sölufulltrúi - fullt starf
Freyja

Verkstæðisstjórnun og mótaka
Dekkjalíf ehf.

Vátrygginga- og lífeyrisráðgjafi hjá Bayern Líf á Akureyri
Bayern líf

Tæknimaður
Ístak hf

Sölustjóri
Hagar miðlar