

Verkstæðisstjórnun og mótaka
Dekkjalíf í Hafnarfirði leitar að verkstæðisstjóra til að sjá um móttöku, skipulagningu verkefna og daglega yfirsýn yfir verkstæði.
Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini, móttöku bíla, gerð verkbeiðna, skipulagningu verkefna og eftirfylgni með því að verk klárist á réttum tíma og séu vel unnin. Við leitum að einstaklingi með reynslu af bílaverkstæði, dekkjaþjónustu, bílaréttingum eða almennri bílaþjónustu. Viðkomandi þarf að hafa góða yfirsýn, geta unnið skipulega og eiga auðvelt með samskipti við bæði viðskiptavini og starfsmenn. Starfið er fyrst og fremst í móttöku, afgreiðslu og verkefnastjórnun, en viðkomandi þarf einnig að vera tilbúinn að aðstoða á verkstæðinu þegar þörf er á.
Móttaka viðskiptavina og bíla.
Samskipti við viðskiptavini í síma, tölvupósti og á staðnum.
Gerð verkbeiðna og eftirfylgni með verkefnum.
Skipulagning verkefna á dekkjaverkstæði, réttingaverkstæði og í almennum viðgerðum.
Dagleg yfirsýn yfir stöðu verkefna og afhendingartíma.
Samskipti og samvinna við starfsmenn á verkstæði.
Aðstoð við verkstæðisvinnu þegar þörf er á.
Íslenska
Enska






