

Sérfræðingur í markaðsmálum og gervigreind
Við leitum að sérfræðingi í markaðsmálum og gervigreind sem hefur brennandi áhuga á efnissköpun, stafrænni markaðssetningu og nýrri tækni. Þú verður hluti af öflugu teymi Markaðsstofu sem vinnur þvert á fyrirtæki Travel Connect samstæðunnar. Hlutverk þitt verður meðal annars að greina, prófa og innleiða nýjar leiðir til að nýta gervigreind í markaðsstarfi.
Um er að ræða nýtt starf og mun nýr starfsmaður taka þátt í að móta hlutverkið og þróa það áfram í samstarfi við framkvæmdastjóra Markaðsstofu og annað starfsfólk teymisins. Ef þú tikkar í öll boxin og lítur á þetta sem spennandi tækifæri að þá viljum við gjarnan heyra frá þér.
- Kanna möguleika erindreka (e. agentic AI) til að styðja við sjálfvirkni, efnissköpun, og annað markaðsstarf.
- Taka þátt í stafrænum markaðsverkefnum, meðal annars á sviði SEO, GEO, AEO og markaðssetningar þvert á miðla.
- Meta og greina tækifæri þar sem gervigreind getur skapað raunverulegt virði.
- Miðla þekkingu og aðstoða samstarfsfólk við að nýta gervigreindartól í markaðstengdum störfum.
- Framkvæma tilraunir, prófa nýjar nálganir og vinna stöðugt að því að bæta markaðsferla og árangur.
Mestu máli skiptir að þú hafir raunverulega reynslu af notkun gervigreindar, skiljir hagnýta möguleika hennar í markaðsstarfi og hafir áhuga á að hjálpa okkur að þróa snjallari leiðir til efnissköpunar, stjórnun markaðsherferða og samskipta við viðskiptavini.
Við leitum að einstaklingi með:
- Menntun sem að nýtist í starfi, t.d. á sviði markaðsmála.
- Mikinn áhuga á markaðsmálum, tækni og gervigreind.
- Reynslu af gervigreindar erindrekum, sjálfvirknivæðingu og verkferlum sem byggja á gervigreind.
- Reynslu af Google Ads, Meta Ads, SEO, PPC og efnismarkaðssetningu.
- Góða samskiptahæfni og getu til að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi.
- Góða færni í ensku og íslensku.
Íslenska
Enska







