
Avis og Budget
Bílaleiga Avis rekur rætur sínar allt aftur til ársins 1946, til borgarinnar Detroit í Michigan. Í dag er bílaleiga Avis heimsþekkt alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar í meira en 165 löndum. Avis á Íslandi hefur verið starfandi síðan 1987 og er í dag ein stærsta bílaleiga landsins.
Hjá Avis á Íslandi starfa um 100 manns um land allt með höfuðstöðvar í Reykjavík. Avis er fjölbreyttur og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu.
Fyrirtækið hlaut jafnlaunavottun 2021 og fjöldann allan af ferðaviðurkenningum.

Viðskiptastjóri - Erlendir markaðir
AVIS á Íslandi leitar að metnaðarfullum og söludrifnum viðskiptastjóra sem vill taka þátt í áframhaldandi vexti fyrirtækisins og gegna lykilhlutverki á sölu- og markaðssviði.
Viðskiptastjóri starfar beint undir framkvæmdastjóra sölu og markaðssviðs og ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun viðskiptasambanda við ferðaskrifstofur og aðra samstarfsaðila í ferðaþjónustu. Meginmarkmið starfsins er að auka sölu, styrkja samstarf og skapa ný viðskiptatækifæri á erlendum mörkuðum.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í alþjóðlegu umhverfi þar sem reynir á frumkvæði og samskiptahæfni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með og þróun samskipta við ferðaskrifstofur og aðra lykilsamstarfsaðila
- Öflun nýrra viðskiptavina og uppbygging nýrra samstarfssamninga
- Greina sölutækifæri og markaðsaðstæður
- Regluleg samskipti, heimsóknir og fundir með viðskiptavinum innanlands og erlendis
- Gerð tilboða, samningaviðræður og eftirfylgni samninga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun og / eða reynsla sem nýtist í starfi
- Greiningarhæfni
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Reynsla úr ferðaþjónustu er mikill kostur
- Rík þjónustulund
- Frumkvæði
- Metnaður til að bæta sölu og þjónustu
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
- Vilji og geta til að ferðast vegna starfsins
Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur7. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Holtagarðar, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
GreiningarfærniJákvæðniMannleg samskiptiMicrosoft ExcelSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSölumennskaVinna undir álagiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölukona/Sölumaður
DÚKA

Söluráðgjafi Öryggislausna
Nortek

Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja
KPMG á Íslandi

Sölufulltrúar óskast í fyrirhugaða verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Tæknilegur söluráðgjafi
Málmsteypan

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Sölustjóri
Hyatt Centric Reykjavík

Ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Vilt þú slást í hópinn? Við leitum af kraftmikilli sölumanneskju í 100% starf.
Mathilda

Service Agent - KEF airport
Avis og Budget

Viðskiptagreinandi (e. Business Analyst)
Torcargo

Þjónusturáðgjafi á bifreiðaverkstæði
Bílvogur