
Söluráðgjafi Öryggislausna
Vegna aukinna umsvifa leitar Nortek að skipulögðum og kraftmiklum Sölusérfræðing til starfa innan ráðgjafadeildar fyrirtækisins.
Um er að ræða starf í framlínu söluteymis Nortek sem sinnir víðtækum hópi viðskiptavina með framúrskarandi þjónustulund.
Starfið felur í sér ráðgjöf og sölu á Aðgangsstýringum, Myndavélakerfum & Brunaviðvörunarkerfum ásamt öðrum vöruflokkum Nortek ehf.
Mikilvægt er að viðkomandi vinni vel sjálfstætt og í hóp, sé ábyrgðarfullur og heiðarlegur
Hjá okkur færð þú tækifæri til að þróast og vaxa í starfi. Við bjóðum upp á reglulega fræðslu og þjálfun í nýjustu lausnum þannig að þú sért alltaf á toppnum í faginu.
Við leggjum mikla áherslu á jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi þar sem gott samstarf og húmor er í hávegum haft, og tryggjum þér faglegan stuðning svo þú getir tekist á við spennandi og krefjandi verkefni.
- Starfið felur í sér þarfagreiningu nýrra og núverandi viðskiptavina, ráðgjöf á öryggisbúnaði, Tilboðsgerð og eftirfylgni.
- Áhugi og skilningur á nýjustu tæknilausnum nauðsynlegur
- Reynsla af sölustarfi og/eða viðskiptastýringu
- Menntun á sviði rafiðngreina, verkfræði, viðskiptafræði eða sambærileg er kostur.
- Góð almenn tölvukunnátta skilyrði.
- Góð almenn þekking á öryggistækni er kostur
- Skipulagshæfni og lausnamiðuð vinnubrögð
- Rík þjónustulund ásamt vilja til þess að ná árangri í starfi.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
Íslenska
Enska










