Rangárþing Ytra
Rangárþing Ytra

Verkefnastjóri skrifstofu þjónustumiðstöðvar

Rangárþing ytra auglýsir laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra skrifstofu þjónustumiðstöðvar.

Þjónustumiðstöð Rangárþings ytra sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að rekstri og þjónustu sveitarfélagsins. Þar er lögð áhersla á góða þjónustu, skilvirka stjórnsýslu og öflugt samstarf.

Leitað er að skipulögðum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum verkefnum og vill taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu ört vaxandi sveitarfélags.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með málakerfi þjónustumiðstöðvar (ONE).
  • Þjónusta vegna reksturs vatnsveitu.
  • Reikningagerð fyrir þjónustumiðstöð og skipulags- og byggingaembætti.
  • Vinnsla almennra umsókna og afgreiðsla erinda.
  • Skipulag seyrulosunar og samskipti við íbúa og verktaka.
  • Umsjón með vinnuskóla sveitarfélagsins.
  • Undirbúningur funda í samstarfi við forstöðumann.
  • Móttaka og þjónusta við íbúa, símsvörun og samskipti.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Iðn- eða tæknimenntun kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun kostur.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Góð tölvukunnátta og rík hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Auglýsing birt23. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyjasandur 2, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar